Beint á leiðarkerfi vefsins

Viltu taka nema?

Upplýsingar fyrir vinnustaði sem hyggjast taka nema

Eftirfarandi lýsingu er ætlað að leiðbeina vinnustöðum í bókasafnstækni, bókbandi, fjölmiðlatækni, grafískri miðlun (prentsmíð), ljósmyndun, prentun og veftækni.

Starfsgreinaráð skrifaði lýsinguna að beiðni menntamálaráðuneytisins.

1. Hlutverk og markmið vinnustaðanáms

Hlutverk vinnustaðanáms er að þroska fagmennsku nemenda og þjálfa þá í því sem skólinn getur ekki kennt þeim. Auk þjálfunar í verktækni á nemandinn að læra sjálfstæði í vinnubrögðum, menningu fagsins og siðalögmál þess. Vinnustaðanám í upplýsinga - og fjölmiðlagreinum eru 48-52 vinnuvikur.

Við upphaf vinnustaðanáms er gerður samningur um vinnustaðanám. Vinnustaðanám skal vera launað, það skal vera stundað á vinnustað sem hefur nemaleyfi eða heimild ráðuneytis til að taka nema og meistari eða tilsjónarmaður tekur ábyrgð á kennslu nemans.

Samningur um vinnustaðanám er ekki gildur fyrr en framhaldsskólasvið IÐUNNAR hefur samþykkt og gilt hann. Gildur samningur um vinnustaðanám er skilyrði þess að nemi geti gengist undir sveinspróf. Um leið og vinnustaður hefur samþykkt að taka nema á samning skal gera slíkan samning. Eyðublöð um námssamning eru hér.

2. Jákvæðni er lykilatriði

Til þess að neminn nái árangri er mikilvægt að tilsjónarmaðurinn og starfsfélagarnir hafi jákvætt viðhorf til nemans og séu fúsir til að kenna honum. Um leið og nýliðaáætlun er gerð fyrir nýja starfsmanninn er honum skipaður tilsjónarmaður og áætlun um vinnustaðanám er gerð.

3. Stígandi námsins

Eðlileg stígandi í vinnustaðanáminu er mikilvæg.  Fyrstu verkefnin skulu vera einföld undir leiðsögn og eftirliti. Þegar neminn sýnir að hann getur leyst einföld verkefni án stuðnings fær hann þyngri verkefni að glíma við. Þannig er þekking og færni nemans byggð upp stig af stigi. Að lokum er neminn fær um að leggja til lausnir og fær innsýn í breiðari svið starfseminnar.

4. Tilsjónarmaður nema

Tilsjónarmaður ber ábyrgð á nemanum og vinnustaðanáminu. Tilsjónarmaður sér til þess að neminn fái upplýsingar, verkefni við hæfi, gætir hagsmuna nemans og fylgir honum eftir. Tilsjónarmaður veitir nemanum handleiðslu og endurgjöf á frammistöðu hans.  Tilsjónarmaður nema þarf að þekkja námskrá viðkomandi starfsgreinar og vita hvað nemandinn hefur lært í skólanum.

5. Þjálfunaráætlun

Nauðsynlegt er að gera þjálfunaráætlun fyrir nemann. Það er til þess að námið verði markvisst og skili nemanum þeirri færni sem þarf til að standast sveinspróf. Þjálfunaráætlun er brotin niður á tímabil og verkefni. 

Í áætlun þarf að vega saman aðstæður á vinnustað, verkefnastöðu og þarfir nemans. Til þess að auka samábyrgð og skipulagshæfni skal neminn vera þátttakandi í skipulagningunni. 

6. Handleiðsla/kennsla og mat

Á vinnustað lærir nemandinn með þrennum hætti. Í fyrsta lagi með því að fylgjast með fagmönnum í starfi og taka þá sér til fyrirmyndar. Í öðru lagi með því að fá skipulagða sýnikennslu og tilsögn í nýjum verkefnum eða verktækni. Og í þriðja lagi með samfelldri handleiðslu.

Handleiðsla er leiðsögn sem þroskar færni nemans. Hún er stígandi að lokataktmarki námsins sem er sveinspróf. Með samtali við nemann gefur tilsjónarmaðurinn skýra mynd af því hvar neminn er staddur hverju sinni. Mikilvægt er að tilsjónaramaðurinn leiðbeini nemanum þannig að hann taki framförum. Þannig venst neminn því að verk hans séu metin á raunsæjan og heiðarlegan hátt. Handbók eða ferilbók er hjálpartæki í þessu ferli.

 



Slóðin mín:

Vinnustaðanám » Viltu taka nema

Heim

Forsíða IÐUNNARIDAN.IS

Stjórnborð

Minnka letur Upphaflegt letur Stækka letur Senda þessa síðu Prenta þessa síðu Veftré Hamur fyrir sjónskerta

Mynd