Vinnustaðanám í prentun
Lokamarkmið
Við lok vinnustaðanáms í prentun á nemandi að hafa nægilega þekkingu og færni til að vinna sem sveinn við prentun og annast daglega umsjón og rekstur prentvéla í stórum og smáum prentfyrirtækjum, þ.e.
- að taka við verki á prentplötu, myndamóti eða í tölvutæku formi
- að stilla verkið (prentformið) og pappírinn inn í prentvél og stilla litaráferð
- að prenta verkið og tryggja sömu prentgæði í öllu upplaginu
- að sinna umhirðu prentvélar, þrifi og stillingum
- að eiga samskipti við annað fagfólk, útgefendur og viðskiptavini.
Væntingar til vinnustaða sem taka nema til náms
Prentun er skipt upp í þrjá meginþætti; hefðbundna offsetprentun, flexó-prentun og dagblaðaprentun. Þessi skipting er bæði tæknileg og fagleg og hver þáttur krefst sérkunnáttu í vinnubrögðum, þekkingu á hráefnum og umgengni við prentvélar.
Mannafli: Hér þurfa að vera til staðar löggiltir starfsmenn (iðnsveinar og/eða -meistarar) sem hafa bæði reynslu og þekkingu til að sinna þeim margvíslegu þáttum sem hver prentaðferð felur í sér. Einnig þurfa þeir að vera færir um að segja til, kenna og þjálfa þau vinnubrögð og þann hugsanagang sem nauðsynlegur er til að geta sinnt starfi prentarans, hvaða þátt sem nemandinn kann að velja sér.
Tækjakostur: Tækjakostur í prentun er að meginstofni til prentvélar, misjafnlega margbrotnar í meðferð og vinnubrögðum, eins og námsmarkmið og námsþættir gefa til kynna. Tryggja þarf að í prentsmiðjum sem taka nema sé fyrir hendi nauðsynlegur tækjakostur til að uppfylla kröfur námsáætlunar og að þeir starfsmenn sem við fyrirtækið starfa hafi kunnáttu og getu til að kenna á hann.
- Hefðbundin offsetprentun
Einslitarprentvél, tveggja lita prentvél, fjöllitaprentvél. - Límmiðaprentun
Tækjabúnaður og prentvélar til undirbúnings og prentunar límmiða, öðrum megin, beggja megin og fjöllita. - Flexó
Tækjabúnaður og prentvélar til undirbúnings og prentunar á plast með gúmmímótum, einslitar og fjöllita. - Dagblaðaprentun
Strengprentvél með fjölbreyttum stillingum og möguleikum til einslitarprentunar og fjöllitaprents. Stjórnborð, brotvél og keyrsluborð. - Stafræn prentun
Einslitar eða fjöllitaprentvél, sem prentar stafrænt öðrum megin eða beggja vegna, með mismunandi aðferðum.
Leit
Mynd











