Beint á leiðarkerfi vefsins

Ljósmyndun

Við lok vinnustaðanáms í ljósmyndun á nemandi að hafa nægilega þekkingu og færni til að sinna margbreytilegum störfum við ljósmyndun og vera jafnvígur á hefðbundna og stafræna myndatökutækni. Í stórum dráttum er um að ræða

  • hefðbundna stofuljósmyndun (portretstúdíó)
  • myndatöku á vettvangi, fréttaljósmyndun, náttúru- og landslagsljósmyndun og umhverfisljósmyndun
  • ljósmyndun vegna iðnaðar og auglýsinga sem fram fer bæði í stúdíói og utan þess.

Væntingar til vinnustaða sem taka nema til náms

Gefinn er kostur á þrenns konar sérhæfingu í vinnustaðanámi, portret stúdíó, iðnaðarljósmyndun og fréttaljósmyndun . Þriðjungur námsins í öllum þessum greinum skal vera í stafrænni ljósmyndun.

Mannafli: Hér þurfa að vera til staðar starfsmenn sem hafa bæði reynslu og þekkingu til að sinna þeim margvíslegu þáttum sem fara þarf í gegnum við undirbúning ljósmyndunar, framkvæmdina sjálfa og vinnslu myndanna. Einnig þurfa þeir að vera færir um að segja til, kenna og þjálfa þau vinnubrögð og þann hugsanagang sem nauðsynlegur er til að geta sinnt starfi ljósmyndarans.

Tækjakostur: Tækjakostur í ljósmyndun er að meginstofni til myndavélar, tölvur og myndvinnsluforrit, lampar og kastarar, framköllunarvélar og skannar. Tryggja þarf að slíkur tækjakostur sé fyrir hendi og að þeir starfsmenn sem við fyrirtækið starfa hafi kunnáttu og getu til að kenna á hann.


Slóðin mín:

Vinnustaðanám » Ljósmyndun

Heim

Forsíða IÐUNNARIDAN.IS

Stjórnborð

Minnka letur Upphaflegt letur Stækka letur Senda þessa síðu Prenta þessa síðu Veftré Hamur fyrir sjónskerta

Mynd