Beint á leiðarkerfi vefsins

Vinnustaðanám í grafískri miðlun

Lokamarkmið náms í vinnustaðanámi í grafískri miðlun 

Við lok vinnustaðanáms í grafískri miðlun á nemandi að hafa nægilega þekkingu og færni til að sinna störfum í prentsmiðjum, auglýsingastofum og fjölmiðlum í samræmi við viðteknar gæðakröfur og með viðeigandi hugbúnaði, m.a. við

  • hönnun allra helstu tegunda prentgripa, s.s. blaða, bóka og tímarita
  • hönnun  fyrir skjámiðla 
  • hönnun auglýsinga og auglýsingaefnis
  • móttöku fjölmiðlaefnis, texta og myndefnis og frágang (forvinnslu) þess til prentunar, birtingar eða útgáfu s.s. á pappír, skjá eða aðra miðla, þ.m.t. uppsetningu, umbrot, textameðferð og myndvinnslu.

Mannafli: Hér þurfa að vera til staðar starfsmenn sem hafa bæði reynslu og þekkingu til að sinna þeim margvíslegu störfum sem gegna þarf við frágang efnis til prentunar. Einnig þurfa þeir að vera færir um að segja til um, kenna og þjálfa þau vinnubrögð og þann hugsanagang sem nauðsynlegur er til að geta sinnt starfi við grafíska miðlun.

Tækjakostur: Tækjakostur í grafískri miðlun er að meginstofni til tölvur og sérstök forrit til framsetningar á hvers konar efni, hvort sem um er að ræða textavinnslu og gröf, myndvinnslu og hljóð og hreyfimyndir eða umbrot og týpógrafíska framsetningu efnis. Tryggja þarf að slíkur kostur sé fyrir hendi og að þeir starfsmenn sem við stofnunina starfa hafi kunnáttu og getu til að kenna á hann.



Slóðin mín:

Vinnustaðanám » Grafísk miðlun

Heim

Forsíða IÐUNNARIDAN.IS

Stjórnborð

Minnka letur Upphaflegt letur Stækka letur Senda þessa síðu Prenta þessa síðu Veftré Hamur fyrir sjónskerta

Mynd