Beint á leiðarkerfi vefsins

Fjölmiðlatækni

Við lok vinnustaðanáms í fjölmiðlatækni á nemandi að hafa nægilega þekkingu og færni til að vinna með sérfræðingum/fagfólki á einum eða tveimur eftirtalinna fjölmiðla; prentmiðli (dagblaði), hljóðvarpi, sjónvarpi og/eða vefmiðli, m.a. við

  • öflun, úrvinnslu og frágang efnis til birtingar eða útsendingar
  • uppsetningu og frágang á tækjum

Í fjölmiðlatækni er gefinn kostur á námi við ferns konar fjölmiðlun, prentmiðil (dagblað), hljóðvarp, sjónvarp og vefmiðil. Sérhver þessara fjölmiðla hefur séreinkenni sem skilja hann frá öðrum gerðum fjölmiðla, þannig að fullt nám á einum miðli felur í sér ákveðna sérhæfingu. Því er nemendum gefinn kostur á að skipta náminu á milli tveggja gerða fjölmiðla, vilji þeir útskrifast með víðtækari menntun en sérhæfingu á einni gerð fjölmiðla.

a) Dagblað/Prentmiðill

Mannafli: Hér þurfa að vera til staðar starfsmenn sem hafa bæði reynslu og þekkingu til að sinna þeim margbreytilegu störfum sem gegna þarf við útgáfu dagblaðs. Einnig þurfa þeir að vera færir um segja til, kenna vinnubrögð og þjálfa þann hugsanagang sem nauðsynlegur er til að geta sinnt starfi við fjölmiðlun.

Tækjakostur: Tækjakostur dagblaða er margvíslegur, enda deildir margar. Stór hluti tækja er tölvur og forrit til margvíslegrar vinnslu, s.s. ritvinnslu, myndvinnslu, útlitshönnunar og umbrots, teikniforrit og gagnagrunnar af ýmsu tagi. Einnig nauðsynlegur útbúnaður til ljósmyndunar, bæði vettvangsmyndun innanhúss og fréttaljósmyndun. Tryggja þarf að slíkur kostur sé fyrir hendi og að þeir starfsmenn sem við fyrirtækið starfa hafi kunnáttu og getu til að kenna á hann.

b) Hljóðvarp

Mannafli: Hér þurfa að vera til staðar starfsmenn sem hafa bæði reynslu og þekkingu til að sinna þeim margbreytilegu störfum sem gegna þarf við rekstur hljóðvarps. Einnig þurfa þeir að vera færir um segja til um og kenna vinnubrögð og þjálfa þann hugsanagang sem nauðsynlegur er til að geta sinnt starfi við fjölmiðlun.

Tækjakostur: Tækjakostur hljóðvarps er margvíslegur, enda deildir margar. Hluti tækja er tölvur og forrit til margvíslegrar vinnslu, s.s. ritvinnslu og hljóðvinnslu og gagnagrunnar af ýmsu tagi. Einnig nauðsynlegur útbúnaður til upptöku, bæði í hljóðveri og vettvangsupptökur utanhúss og innan. Tryggja þarf að slíkur kostur sé fyrir hendi og að þeir starfsmenn sem við fyrirtækið starfa hafi kunnáttu og getu til að kenna á hann.

c) Sjónvarp

Mannafli: Hér þurfa að vera til staðar starfsmenn sem hafa bæði reynslu og þekkingu til að sinna þeim margbreytilegu störfum sem gegna þarf við rekstur sjónvarps. Einnig þurfa þeir að vera færir um að segja til um og kenna vinnubrögð og þjálfa þann hugsanagang sem nauðsynlegur er til að geta sinnt starfi við fjölmiðlun.

Tækjakostur: Tækjakostur sjónvarps er margvíslegur, enda deildir margar. Stór hluti tækja er tölvur og forrit til margvíslegrar vinnslu, s.s. ritvinnslu, myndvinnslu og grafískrar vinnslu, teikniforrit og gagnagrunnar af ýmsu tagi. Einnig nauðsynlegur útbúnaður til myndunar (upptöku), bæði í myndveri innanhúss og fréttamyndun á vettvangi og hljóðvinnslu. Tryggja þarf að slíkur kostur sé fyrir hendi og að þeir starfsmenn sem við fyrirtækið starfa hafi kunnáttu og getu til að kenna á hann.

d) Vefmiðill

Mannafli: Hér þurfa að vera til staðar starfsmenn sem hafa bæði reynslu og þekkingu til að sinna þeim störfum sem gegna þarf við rekstur vefmiðils. Einnig þurfa þeir að vera færir um að segja til um og kenna vinnubrögð og þjálfa þann hugsanagang sem nauðsynlegur er til að geta sinnt starfi við fjölmiðlun.

Tækjakostur: Tækjakostur vefmiðla er að meginstofni til tölvur og sérstök forrit til framsetningar á hvers konar efni, hvort sem um er að ræða beina miðlun í eina átt eða gagnvirka miðlun. Um er að ræða textavinnslu og gröf, hljóð og hreyfimyndir. Tryggja þarf að slíkur kostur sé fyrir hendi og að þeir starfsmenn sem við stofnunina starfa hafi kunnáttu og getu til að kenna á hann.



Heim

Forsíða IÐUNNARIDAN.IS

Stjórnborð

Minnka letur Upphaflegt letur Stækka letur Senda þessa síðu Prenta þessa síðu Veftré Hamur fyrir sjónskerta

Mynd