Bókband
Við lok vinnustaðanáms í bókbandi á nemandi að hafa nægilega þekkingu og færni til að sinna störfum við bókband í prentsmiðjum, bókbandsfyrirtækjum og öðrum upplýsinga- og fjölmiðlafyrirtækjum við
- lokafrágang á prentuðu efni með vélbandi, þ.m.t. vinnu við brot í tölvustýrðum brotvélum vinnu við skurðarhnífa svo og vinnu við stillingar, daglegt viðhald og notkun vélasamstæða og einstakra véla
- lokafrágang á prentuðu efni með hefðbundnu handverki, með þeim handverkfærum sem til þess þarf.
Væntingar til vinnustaða sem taka nema til náms
Mannafli: Hér þurfa að vera til staðar iðnmenntaðir starfsmenn með sveinspróf í bókbandi, sem hafa bæði reynslu og þekkingu í meðferð þeirra véla og þess búnaðar sem námið krefst, geta sagt til um vinnubrögð, gæði efnis og eiginleika og annast faglega kennslu í þeim aðskiljanlegu verkefnum sem bókbandsverkstæði annast.
Tækjakostur: Vélakostur bókbandsverkstæða sem taka nemendur til náms þarf a.m.k. að vera eftirfarandi: Tölvustýrður beinskeri, pappírshnífur, brotvél, heftivél, saumavél, gyllingarvél.
Leit
Mynd











