Bókasafnstækni
Lokamarkmið
Að loknu vinnustaðanámi í bókasafnstækni á nemandi að hafa nægilega þekkingu og færni til að vinna við upplýsingaöflun og upplýsingamiðlun í fyrirtækjum, bókasöfnum, skjalasöfnum og öðrum upplýsingamiðstöðvum, m.a.
að veita ólíkum notendahópum almenna og sérhæfða þjónustu
að vinna við hlið sérfræðinga við upplýsingaleit og skráningu gagna
að vinna við almenna umsýslu tölvubúnaðar
að viðhalda vefefni
að vinna við framsetningu kynningarefnis fyrirtækja og stofnana.
Væntingar til vinnustaða sem taka nema til náms
Í bókasafnstækni er nemendum gefinn kostur á þrenns konar vinnustaðanámi;
1. í stofnunum sem eru bóka- og skjalasöfn,
2. í stofnunum sem eru bæði bókasöfn og upplýsingamiðstöðvar og
3. í stofnunum sem sinna eingöngu skjalavörslu.
Nemandi getur tekið allt vinnustaðanámið, 48 vikur, í einni gerð stofnunar eða skipt því á milli mismunandi stofnana. Væntingar til aðbúnaðar til kennslu í þessum stofnunum eru þessar.
• Bóka- og skjalasöfn Mannafli: Hér þurfa að vera til staðar bókasafns- og upplýsingafræðingar sem hafa reynslu og þekkingu í meðferð og varðveislu bóka og skjala, geta sagt til um greiningu heimilda og bókfræðilega skráningu við heimildaleit. Einnig þurfa þeir að þekkja og geta sagt til um mismunandi tegundir safngagna og skjalaflokka, varðveislu og flokkun.Tækjakostur: Tækjakostur bóka- og skjalasafna er að meginstofni til tölvur og sérstök forrit til leitar að, skrásetningar og útlána á bókum og skjölum. Tryggja þarf að slíkur kostur sé fyrir hendi og að þeir starfsmenn sem við stofnunina starfa hafi kunnáttu og getu til að kenna á hann.• Bókasöfn/Upplýsingamiðstöðvar Mannafli: Hér þurfa að vera til staðar bókasafns- og upplýsingafræðingar sem hafa reynslu og þekkingu í meðferð, varðveislu og miðlun bóka og upplýsinga, geta sagt til um greiningu heimilda og bókfræðilega skráningu við heimildaleit. Einnig þurfa þeir að þekkja og geta sagt til um mismunandi tegundir safngagna og upplýsinga, varðveislu og flokkun.Tækjakostur: Tækjakostur bókasafna og upplýsingamiðstöðva er að meginstofni til tölvur og sérstök forrit og gagnagrunnar til leitar að, skrásetningar og útlána á bókum og til leitar að, geymslu og miðlunar upplýsinga. Tryggja þarf að slíkur kostur sé fyrir hendi og að þeir starfsmenn sem við stofnunina starfa hafi kunnáttu og getu til að kenna á hann.• Skjalasöfn Mannafli: Hér þurfa að vera til staðar bókasafns- og upplýsingafræðingar sem hafa reynslu og þekkingu í meðferð og varðveislu skjala, geta sagt til um greiningu og skráningu við heimildaleit. Einnig þurfa þeir að þekkja og geta sagt til um mismunandi tegundir safngagna og skjalaflokka, varðveislu og flokkun.Tækjakostur: Tækjakostur skjalasafna er að meginstofni til tölvur og sérstök forrit til leitar að, skrásetningar og varðveislu á skjölum. Tryggja þarf að slíkur kostur sé fyrir hendi og að þeir starfsmenn sem við stofnunina starfa hafi kunnáttu og getu til að kenna á hann.
Leit
Mynd











