Beint á leiðarkerfi vefsins

Hvað gerir prenttæknisvið?

Prenttæknisvið er símenntunarmiðstöð í upplýsinga- og fjölmiðlagreinum.

Undir upplýsinga- og fjölmiðlagreinar falla prentun, prentsmíð, bókband og ljósmyndun sem eru löggiltar iðngreinar. Þar að auki sinnir Prenttæknisvið mati á vinnustaðanámi í bókasafnstækni, fjölmiðlatækni og veftækni. 

Prenttæknisviði er falin umsýsla starfsgreinaráðs í upplýsinga og fjölmiðlagreinum (SUF). Starfsgreinaráð er ráðgjafi menntamálaráðuneytisins um málefni sem varða upplýsinga- og fjölmiðlagreinar.  Ritari Starfsgreinaráðs í upplýsinga-og fjölmiðlagreinum er Björn M. Sigurjónsson.

Félagar í Félagi bókagerðarmanna og fyrirtæki í upplýsinga- og fjölmiðlagreinum, sem eiga aðild að Samtökum iðnaðarins og eru aðilar að Prenttæknisjóði, njóta umtalsverðra niðurgreiðslna á námskeiðum og fræðsluviðburðum Prenttæknisviðs. Niðurgreiðslurnar nema allt að 90% af fullu verði fyrir hvern þátttakanda. Til þess að öðlast aðild að prenttæknisviði verða fyrirtæki að gerast aðilar að SI og greiða af starfsmönnum sínum til Prenttæknisjóðs. Símenntagjald til Prenttæknisjóðs er 1% af launum starfsmanns sem skiptist skv. kjarasamningum að jöfnu milli launþega og launagreiðanda.

Sviðsstjórn er svo skipuð: Georg Páll Skúlason formaður frá FBM, Haraldur Dean Nelson varaformaður sviðsstjórnar frá SI, Stefán Ólafsson frá FBM, Guðbrandur Magnússon frá SI (varamaður), Hanna Þórunn Skúladóttir frá SI, Anna Haraldsdóttir frá FBM (varamaður), Sölvi Sveinbjörnsson frá SI (varamaður) og Oddgeir Þór Gunnarsson frá FBM (varamaður). Sviðsstjórn fundar að jafnaði á 6-8 vikna fresti.

Fyrirtæki geta fengið fjárstuðning til að halda námskeið innan sinna veggja eða til að senda starfsmenn á námskeið erlendis. 

Einstaklingar geta einnig sótt um styrki til náms á Íslandi og erlendis.

Prenttæknisvið varð til við sameiningu Prenttæknistofnunar og þriggja  símenntunarmiðstöðva á Hallveigarstíg. Við sameininguna færðist öll starfsemi Prenttæknistofnunar til IÐUNNAR fræðsluseturs. Prenttæknisvið og Prenttæknistofnun er því sama fyrirtækið.   


 

Sviðsstjóri Prenttæknisviðs er Björn M. Sigurjónsson  Bjorn M 30_06_10

Aðsetur:

Skúlatún 2, 105 Reykjavík.
Sími 590 6400, fax 590 6401

Netfang sviðsstjóra: bjorn(hjá)idan.is



Slóðin mín:

Um Pts

Heim

Forsíða IÐUNNARIDAN.IS

Stjórnborð

Minnka letur Upphaflegt letur Stækka letur Senda þessa síðu Prenta þessa síðu Veftré Hamur fyrir sjónskerta

Mynd