Þróunarverkefni
Hér eru tenglar á nokkur af þeim þróunarverkefnum sem prenttæknisvið tekur þátt í eða gengst fyrir. Á síðustu tveimur árum hefur prenttæknisvið staðið fyrir t.a.m evrópska yfirfærsluverkefninu SOFIA með tilstyrk Landsskrifstofu Leonardós á Íslandi. Þá var efnt til verkefnis sem heitir Hannað í málm með styrk frá Starfsmenntasjóði. Í samvinnu við Samtök iðnaðarins var gerð gangskör að innleiðingu nýrra verkferla í meðhöndlun litskjala (RGB) og Rannsóknir og greining vann skýrslu um umfang kennslu í grafískum greinum og afdrif nemenda með styrk frá Starfsmenntasjóði. Öll þessi verkefni eru aðgengileg hér á vefnum.