RGB verkefnið
Um mitt ár 2008 var settur saman vinnuhópur á vegum Samtaka iðnaðarins
sem fékk það verkefni að leita leiða til að einfalda og bæta vinnu hönnuða og
ljósmyndara í forvinnslu fyrir prentverk.
Prenttæknisviði IÐUNNAR var í kjölfarið falið að ráða Ólaf Brynjólfsson til þess starfa
að innleiða ferlið í prentsmiðjum og prentfyrirtækjum.
Undanfarna mánuði hefur farið fram ítarleg kennsla á þessu nýja og breytta verklagi,
sem hefur verið mjög vel tekið. Ólafur Brynjólfsson hefur farið meðal fyrirtækja í prentiðnaði
og kennt hið nýja verklag um leið og hann hefur aðstoðað við uppsetningu nýrra prófíla.
Hér má nálgast glærusýningu Ólafs þar sem RGB ferlið er útskýrt.
Ítarlegri leiðbeiningar má nálgast Hér.
Þá hefur Sigurður Ármannsson hönnuður á Íslensku auglýsingastofunni
skrifað leiðbeiningar um RGB vinnsluferlið sem eru hér.