Lög og reglugerðir
Hér er að finna ýmis lög og reglugerðir sem varða iðn- og starfsnám.
Iðnaðarlög frá 1978 innihalda lagaskilyrði sem uppfylla þarf til starfrækslu iðnfyrirtækja. Þar er m.a. fjallað um ábyrgð iðnmeistara.
Framhaldsskólalög frá 2009 innihalda meginreglur um starfrækslu framhaldsskólans. Í 24. gr. - 28. gr. er fjallað um starfsgreinaráð og hlutverk þeirra.
Reglugerð um sveinspróf fjallar um þær reglur sem gilda um framkvæmd sveinsprófa. Í 5. og 6. gr. er kveðið á um hvernig sveinsprófsnefndir eru skipaðar. Starfsgreinaráð gerir tillögu að skipan en menntamálaráðherra skipar í nefndirnar.
Reglugerð um vinnustaðanám og starfsþjálfun á vinnustað fjallar um þær kröfur sem gerðar eru til vinnustaða sem taka nema á samning.
Reglugerð um starfsgreinaráð kveður á um hlutverk og skipan starfsgreinaráða. Skv. 6. gr. er hlutverk starfsgreinaráða að:
- að skilgreina þarfir fyrir kunnáttu og hæfni sem námsbrautalýsingar fyrir viðkomandi starfsgreinar byggjast á og eru hluti af aðalnámskrá framhaldsskóla,
- að gera tillögur um lokamarkmið starfsnáms í samræmi við ramma um hæfniviðmið viðkomandi lokaprófs,
- að gera tillögur að námsbrautarlýsingum fyrir einstakar námsbrautir sem framhaldsskólar geta haft til viðmiðunar,
- að setja viðmið fyrir skiptingu náms í skóla og náms á vinnustað,
- að gera tillögur um uppbyggingu og inntak lokaprófa í starfsnámi á sínu sviði,
- að veita umsögn um námsbrautarlýsingar starfsnáms sem einstakir skólar leita eftir staðfestingu á,
- að vera ráðgefandi við mat á beiðni einkaskóla um viðurkenningu á starfrækslu starfsnámsbrauta,
- að halda skrá yfir fyrirtæki og vinnustaði sem uppfylla skilyrði til vinnustaðanáms,
- önnur verkefni sem ráðherra felur starfsgreinaráði hverju sinni.
Reglugerð um einkaskóla á framhaldsskólastigi fjallar um hvernig veita skuli einkaskólum sem starfa á framhaldsskólastigi starfsheimild og viðurkenningu.
Leit
Mynd











