8.9.2011
Hugsandi hendur - málþing um skapandi verklag í tæknivæddum samtíma
Föstudagur 16. september kl 14:00 - 17:00 og laugardagur 17. september kl. 10.00-15.00 í Þjóminjasafni Íslands.
SKAPANDI VERKLAG - SKÓLI/SAMFÉLAG
Hvernig getur kennsla skapandi greina mætt þörfum
samfélagsins?
Á síðustu árum hefur framleiðsla í síauknum mæli færst frá Evrópu. Um leið hafa kröfur orðið háværari um betri og hugvitasamlegri nýtingu hráefna á þeim stað þar sem þeirra er aflað. Í dag er samsetning á útflutningi Íslendinga svipuð og þjóða sem hafa mun lægra menntunarstig. Þó hafa útflutningsverðmæti tölvuleikjafyrirtækja vaxið hraðar en annarra greina á síðustu árum. Hvernig framleiðum við
áhugaverðari og framsæknari vöru úr íslenskum hráefnum, byggða á kunnáttusamlegu verklagi,
sögu okkar og arfleifð?
Málþingið leitar svara við þessum spurningum og fleirum. Skráning á malthing@mir.is og upplýsingar á www.mir.is
Leit
Mynd











