Beint á leiðarkerfi vefsins

31.1.2011

Morgunfundur um umhverfismál í prentiðnaði


Föstudaginn 11. febrúar 2011 kl. 8.30 - 10.00 var fjallað um umhverfismál í prentiðnaði sem verða sífellt umfangsmeiri í rekstri iðnfyrirtækja. Fundurinn var vel sóttur en um 30 manns sóttu fundinn þrátt fyrir vonskuveður. 
Fundurinn hófst á erindi Bryndísar Skúladóttur, forstöðumanns umhverfismála hjá Samtökum iðnaðarins sem fjallaði um þann lagaramma sem iðnfyrirtækjum er búinn varðandi umhverfismál. Í erindi hennar kom fram að prentiðnaður á Íslandi hefur almennt gott orð á sér fyrir að hafa umhverfismál sín í lagi.  

Þá fjallaði Kjartan Kárason hjá Vottun hf um umhverfisstjórnun samkvæmt alþjóðlega staðlinum ÍST ISO 14001.Í erindi hans kom fram að mörgum vex í augum vinnan sem er því samfara að afla sér vottunar. Hún er þó lítil miðað við þann ávinning sem getur verið af því að hafa slíka vottun.


Að lokum greindi Þóra Hirst verkefnastjóri hjá prentsmiðjunni Odda frá ferli við Svansvottun og hvata þess að Oddi sóttist eftir slíkri vottun. Í máli hennar kom fram að Oddi hafði um nokkurt skeið tekið sín umhverfismál í gegn en kröfur viðskiptavina skiptu nokkru máli varðandi Svansvottunina sem slíka.

14.1.2011

Styttist í rafbókavæðingu Íslands?

Greint var frá opnun nýs rafbókavefjar, www.lestu.is í Fréttablaðinu 14. janúar. Ætlun aðstandenda lestu.is er að bjóða upp á rafbækur fyrir Kindle og iPad. Lestu.is er í eigu Skólavefjarins sem miðlar námsefni til grunn- og framhaldsskóla. Katrín Jakobsdóttir opnaði þessa fyrstu rafbókarsíðu landsins. Ekki fylgdi sögunni hvort hún er sjálf farin að nota iPad eða Kindle. Sennilega er hún meiri Kindle týpa. Prenttæknisvið býður upp á námskeið í umbroti fyrir rafbækur í fyrstu viku febrúarmánaðar með Leon Baird. Skráning hér.

13.1.2011

Kristín Ragna fræðir um Hávamál í Gerðubergi

Kristín Ragna Gunnarsdóttir sem er kennari á námskeiðum prenttæknisviðs IÐUNNAR, fræðir um Hávamál á fyrirlestri í Gerðubergi laugardaginn 15. janúar n.k.

Hávamál er sýning á myndskreytingum Kristínar Rögnu við hina fornu speki Óðins. Myndirnar birtast í bók síðar á þessu ári ásamt gestaþætti Hávamála endurortum af Þórarni Eldjárn. Gestaþáttur er þekktasti hluti Hávamála (77 erindi af 164) en þar er fjallað um góða siði, hegðun og samskipti, mikilvægi þess að rækta vináttuna, meta gildi lífsins og huga að orðstír sínum. Þetta eru fornar lífsskoðanir, mótaðar í heiðni, en margt geta nútímamenn lært af þeim. Þau Kristín og Þórarinn hafa áður átt farsælt samstarfs en saman unnu þau bókina Völuspá sem út kom árið 2005.Sýningunni Hávamál lýkur sunnudaginn 16. janúar.

Ormurinn ógnarlangi er sýning byggð á söguheimi norrænu goðafræðinnar. Þessi heimur er í senn ævintýralegur og heillandi en gestum sýningarinnar gefst kostur á að hitta fyrir goð, jötna og skrýtnar skepnur. Ganga má inn í Ginnungagap, setjast á rökstóla goðanna, skríða inn um gin Miðgarðsormsins, máta hásæti Óðins, setjast í vagn Freyju, skoða fésbókarsíður goðanna eða varpa sér í fang Fenrisúlfsins (og kíkja upp í hann ef maður þorir!). Sýningin höfðar sérstaklega til barna sem eru að kynnast goðafræðinni í fyrsta sinn en þó ekki síður fullorðinna sem þekkja til efniviðarins. Sérstaða sýningarinnar felst í því að gestir eru virkir þátttakendur með því að sjá, heyra, snerta og prófa. Sýningin Ormurinn ógnarlangi stendur til 13. mars næstkomandi.

10.1.2011

jQuery fyrir auglýsingar í farsímum

Adobe leggur nú áherslu á að nota jQuery fyrir auglýsingahönnun í farsímum með Dreamweaver. Að mati Adobe er jQuery fljótlegasta lausnin fyrir notendur vefhönnunarforrita til að koma auglýsingum í farsímaumhverfið. jQuery er auðvelt að tileinka sér og fljótlegt að setja upp auglýsingar í því umhverfi, þetta virðist vera skynsamleg lausn fyrir grafíska hönnuði sem vilja bæta farsímum við þá miðla sem þeir geta þjónað.

Prenttæknisvið býður upp á námskeið í jQuery 21. mars 2011 með Berglind Káradóttur. Skráning hér.



Slóðin mín:

Forsíða

Heim

Forsíða IÐUNNARIDAN.IS

Stjórnborð

Minnka letur Upphaflegt letur Stækka letur Senda þessa síðu Prenta þessa síðu Veftré Hamur fyrir sjónskerta

Mynd