Beint į leišarkerfi vefsins

25.11.2011

68% af bókatitlum prentašir į Ķslandi

Prentstaður íslenskra bóka 2011

Bókasamband Íslands hefur gert könnun á prentstað íslenskra bóka sem getið er í Bókatíðindum Félags íslenskra bókaútgefenda 2011. Fjöldi titla sem prentaðir eru innanlands dragast saman um rúmlega 3 prósentustig milli ára en árið 2010 var 71,4% hlutfall á prentun bókatitla innanlands.

Heildarfjöldi prentaðra bókatitla er 690 í Bókatíðindunum í ár en var 710 árið 2010

 

Skoðað var hvert hlutfall prentunar innanlands og erlendis er eftir flokkum. Þar kemur fram að stór hluti barnabóka er prentaður erlendis en það er m.a. vegna þess að samprent er algengt í útgáfu barnabóka þar sem prentað er sameiginlega fyrir mörg lönd.

 

·      Fræðibækur, bækur almenns efnis og listir eru alls 203; 148 (73%) eru prentaðar á Íslandi og 55 (27%) prentaðar erlendis.

·      Skáldverk, íslensk og þýdd, eru 182; 156 (86%) prentuð á Íslandi og 26 (14%) prentuð erlendis.

·      Saga, ættfræði, ævisögur, handbækur, matur og drykkur eru alls 110; 83 (75%) prentaðar á Íslandi og 27 (25%) prentaðar erlendis.

·      Barnabækur, íslenskar og þýddar, eru alls 195; 83 (43%) prentaðar á Íslandi og 112 (57%) prentaðar erlendis.

Fjöldi titla            %

Ķsland            470                        68,1

Asía              119                        17,2

Evrópa          100                        14,6

Annað                 1                        0,1

Samtals           690                    100%

 

8.9.2011

Hugsandi hendur - mįlžing um skapandi verklag ķ tęknivęddum samtķma

Föstudagur 16. september kl 14:00 - 17:00 og laugardagur 17. september kl. 10.00-15.00 í Þjóminjasafni Íslands.
SKAPANDI VERKLAG - SKÓLI/SAMFÉLAG

Hvernig getur kennsla skapandi greina mætt þörfum
samfélagsins?

Į síðustu árum hefur framleiðsla í síauknum mæli færst frá Evrópu. Um leið hafa kröfur orðið háværari um betri og hugvitasamlegri nýtingu hráefna á þeim stað þar sem þeirra er aflað. Í dag er samsetning á útflutningi Íslendinga svipuð og þjóða sem hafa mun lægra menntunarstig. Þó hafa útflutningsverðmæti tölvuleikjafyrirtækja vaxið hraðar en annarra greina á síðustu árum. Hvernig framleiðum við
įhugaverðari og framsæknari vöru úr íslenskum hráefnum, byggða á kunnáttusamlegu verklagi,
sögu okkar og arfleifð?

Málþingið leitar svara við þessum spurningum og fleirum. Skráning á malthing@mir.is og upplýsingar á www.mir.is

24.8.2011

21% karlmanna lesa iPad į bašherberginu....

Samkvæmt könnun Mediatraining ltd. í London, lesa 21% karlmanna iPadinn sinn á baðherberginu. 25% iPad eigenda lesa bækur á lesbrettinu sínu og 13% lesa tímarit og dagblöð. Condé Nast útgáfan ráðgerir að 35% allrar tímaritasölu komi í gegnum lesbretti á næstu misserum.  Amazon hefur tilkynnt að Kindle útgáfur bóka hafi farið fram úr bóksölu á prenti á árinu 2011.  Á 9 mánuðum síðasta árs seldi Apple 15 milljónir iPad lesbretta sem er mesta sala á einu raftæki sem vitað er um á jafskömmum tíma. 

Ekki er vitað hvað hin 75% sem eiga iPad, en nota hann ekki til að lesa bækur, gera við lesbrettið sitt. 

Námsvísir IÐUNNAR kemur hins vegar út í næstu viku, þó ekki á iPad en boðið verður upp á netútgáfu. Auðvelt er að skrá sig á námskeið IÐUNNAR með því að smella á borðana hér til vinstri. 

3.8.2011

Tķu nżsveinar śtskrifast śr bókišngreinum 2011

Žann 16. júní s.l. fengu tíu nýsveinar afhent sveinsbréf sín í bókiðngreinum. Tveir luku sveinsprófi úr bókbandi og átta úr prentsmíð. Samtök iðnaðarins og Félag bókagerðarmanna bauð til móttöku þar sem afhendingin fór fram í sal Félags bókagerðarmanna að Hverfisgötu 21. 

Björn M. Sigurjónsson sviðsstjóri prenttæknisviðs IÐUNNAR fræðsluseturs flutti stutt ávarp fyrir hönd SI og FBM og að því loknu var gengið til afhendingar bréfanna.

Žeir sem luku sveinsprófi í bókbandi voru Bartosz Pawel Piecha og Óskar Jón Guðmundsson. Theódór Guðmundsson afhenti þeim sveinsbréf.

Žeir sem luku sveinsprófi í prentsmíð (grafískri miðlun) voru Birgir Örn Sigurjónsson, Einar Þór Guðmundsson, Fanney Einarsdóttir, George Kristófer Young, Hrönn Jónsdóttir, Málfríður Þorsteinsdóttir, Rakel Ósk Antonsdóttir og Rebekka Líf Albertsdóttir. Hjörtur Guðnason formaður sveinsprófsnefndar í prentsmíð afhenti nýsveinum sveinsbréf. 

Einari Þór Guðmundssyni var veitt viðurkenning fyrir besta árangur á sveinsprófi en hann var á samningi hjá OPM. Að lokum afhenti Björn M. Sigurjónsson sviðsstjóri pts gjafabréf á námskeið að eigin vali frá IÐUNNI fræðslusetri.  Að lokinni afhendingu bréfa nutu gestir veitinga og hlýddu á söng Jussanam da Silva með undirleik Ásgeirs Ásgeirssonar gítarleikara. Prenttæknsvið árnar nýsveinum heilla.  

3.8.2011

Prenttęknisviš kaupir Press Optimizer frį Xrite

CIE lab press optimizerCIE lab mælibúnaður á prenttæknisviði IÐUNNAR
Prenttæknisvið IÐUNNAR fræðsluseturs keypti á dögunum Xrite Press Optimizer og Xrite Spectro Eye litrófsmæli auk hugbúnaðar til þess að auðvelda prentsmiðjum aðlögun að vottun samkvæmt ISO staðli nr. 12647. Búnaðurinn hentar vel til að fylgjast með gæðum framleiðslunnar, og hvort hráefni prentsmiðja standist gæðakröfur. Búnaðurinn hefur verið reyndur í Svansprent undanfarið og lofar mjög góðu. Að mestum hluta byggjast mælingarnar á svokölluðum CIE-Lab mælingum, (Commission Internationale de l´Eclairage) en grunnur af þessum þrívíðu mælingum var lagður í Frakklandi árið 1931, sama ár og Jón Svan Sigurðsson stofnandi og eigandi Svansprent fæddist, þ.e. fyrir sléttum áttatíu árum.

Búnaðurinn er til nota fyrir þær smiðjur sem aðild eiga að prenttæknisviði án endurgjalds. Í haust verða kynningarfundir haldnir um þennan búnað. Þeim sem vilja nýta sér búnaðinn er bent á að hafa samband við prenttæknisvið IÐUNNAR fræðsluseturs í síma 5906400 eða á netfangið bjorn@idan.is.

(Á myndinni eru Þorgeir Valur Ellertsson, Brynjar Sverrisson og Ólafur Brynjólfsson).

9.5.2011

Samkeppnin haršnar į markaši lesbretta

Samkeppnin harðnar á markaði lesbretta en nú hefur Samsung hafið sölu á lesbrettinu Galaxy Tab 7, sem standast eiga iPad 2 á sporði. Af fréttum frá Samsung má helst skilja að lesbrettið atarna hafi verið löngu tilbúið. En skjárinn þótt í öndverðu of smár uns iPad ruddi smáskjám braut. Vafalaust mun þetta valda verðlækkun ef eitthvað er að marka markaðslögmálin. 

5.5.2011

Fyrsta ķslenka listaverkabókin fyrir iPad!

Listamaðurinn Tolli gefur nú út listaverkabókina ,,Landslag hugans" í samstarfi við Eddu og Epli.is. Þetta er fyrsta listaverkabókin sérstaklega gefin út fyrir iPad og eins og segir í fréttatilkynningu frá Epli.is, stórt skref stigið í útgáfu rafbóka. Þess má geta að umbrotsmenn bókarinnar sóttu námskeið prenttæknisviðs IÐUNNAR í umbroti fyrir iPad og Kindle í vetur. Fleiri námskeið í umbroti rafbóka eru fyrirhuguð. 

1.2.2011

Mikil ašsókn aš nįmskeiši um rafbękur

Uppselt var á námskeið um rafbækur sem hófst í dag. Leiðbeinandi á námskeiðinu er Leon Baird en prenttæknisvið hefur veg og vanda af komu hans hingað til lands. Á námskeiðinu læra starfsmenn í upplýsinga- og fjölmiðlaiðnaði handtökin við umbrot rafbóka. Mikil aukninga hefur verið á söluaukningu iPad í Bretlandi og nemur salan á síðasta ársfjórðungi um 17 milljónum eintaka. Þá var metsala á Kindle rafbókum hjá Amazon fyrir jólin en sala á Kindle var meiri en prentbókum. Nú þegar hafa tvö forlög hafið útgáfu rafbóka og þess má vænta að aukning verði á slíkri útgáfu á næstunni. Á námskeiðinu læra þátttakendur annars vegar umbrot bóka og lesmáls fyrir lesbretti, snjallsíma og skjátöflur og hins vegar gerð auglýsinga með gagnvirkni fyrir sömu miðla. Námskeiðið stendur yfir fram á föstudag.

31.1.2011

Morgunfundur um umhverfismįl ķ prentišnaši


Föstudaginn 11. febrúar 2011 kl. 8.30 - 10.00 var fjallað um umhverfismál í prentiðnaði sem verða sífellt umfangsmeiri í rekstri iðnfyrirtækja. Fundurinn var vel sóttur en um 30 manns sóttu fundinn þrátt fyrir vonskuveður. 
Fundurinn hófst á erindi Bryndísar Skúladóttur, forstöðumanns umhverfismála hjá Samtökum iðnaðarins sem fjallaði um þann lagaramma sem iðnfyrirtækjum er búinn varðandi umhverfismál. Í erindi hennar kom fram að prentiðnaður á Íslandi hefur almennt gott orð á sér fyrir að hafa umhverfismál sín í lagi.  

Žá fjallaði Kjartan Kárason hjá Vottun hf um umhverfisstjórnun samkvæmt alþjóðlega staðlinum ÍST ISO 14001.Í erindi hans kom fram að mörgum vex í augum vinnan sem er því samfara að afla sér vottunar. Hún er þó lítil miðað við þann ávinning sem getur verið af því að hafa slíka vottun.


Að lokum greindi Þóra Hirst verkefnastjóri hjá prentsmiðjunni Odda frá ferli við Svansvottun og hvata þess að Oddi sóttist eftir slíkri vottun. Í máli hennar kom fram að Oddi hafði um nokkurt skeið tekið sín umhverfismál í gegn en kröfur viðskiptavina skiptu nokkru máli varðandi Svansvottunina sem slíka.

14.1.2011

Styttist ķ rafbókavęšingu Ķslands?

Greint var frá opnun nýs rafbókavefjar, www.lestu.is í Fréttablaðinu 14. janúar. Ætlun aðstandenda lestu.is er að bjóða upp á rafbækur fyrir Kindle og iPad. Lestu.is er í eigu Skólavefjarins sem miðlar námsefni til grunn- og framhaldsskóla. Katrín Jakobsdóttir opnaði þessa fyrstu rafbókarsíðu landsins. Ekki fylgdi sögunni hvort hún er sjálf farin að nota iPad eða Kindle. Sennilega er hún meiri Kindle týpa. Prenttæknisvið býður upp á námskeið í umbroti fyrir rafbækur í fyrstu viku febrúarmánaðar með Leon Baird. Skráning hér.

13.1.2011

Kristķn Ragna fręšir um Hįvamįl ķ Geršubergi

Kristín Ragna Gunnarsdóttir sem er kennari á námskeiðum prenttæknisviðs IÐUNNAR, fræðir um Hávamál á fyrirlestri í Gerðubergi laugardaginn 15. janúar n.k.

Hávamál er sýning á myndskreytingum Kristínar Rögnu við hina fornu speki Óðins. Myndirnar birtast í bók síðar á þessu ári ásamt gestaþætti Hávamála endurortum af Þórarni Eldjárn. Gestaþáttur er þekktasti hluti Hávamála (77 erindi af 164) en þar er fjallað um góða siði, hegðun og samskipti, mikilvægi þess að rækta vináttuna, meta gildi lífsins og huga að orðstír sínum. Þetta eru fornar lífsskoðanir, mótaðar í heiðni, en margt geta nútímamenn lært af þeim. Þau Kristín og Þórarinn hafa áður átt farsælt samstarfs en saman unnu þau bókina Völuspá sem út kom árið 2005.Sýningunni Hávamál lýkur sunnudaginn 16. janúar.

Ormurinn ógnarlangi er sýning byggð á söguheimi norrænu goðafræðinnar. Þessi heimur er í senn ævintýralegur og heillandi en gestum sýningarinnar gefst kostur á að hitta fyrir goð, jötna og skrýtnar skepnur. Ganga má inn í Ginnungagap, setjast á rökstóla goðanna, skríða inn um gin Miðgarðsormsins, máta hásæti Óðins, setjast í vagn Freyju, skoða fésbókarsíður goðanna eða varpa sér í fang Fenrisúlfsins (og kíkja upp í hann ef maður þorir!). Sýningin höfðar sérstaklega til barna sem eru að kynnast goðafræðinni í fyrsta sinn en þó ekki síður fullorðinna sem þekkja til efniviðarins. Sérstaða sýningarinnar felst í því að gestir eru virkir þátttakendur með því að sjá, heyra, snerta og prófa. Sýningin Ormurinn ógnarlangi stendur til 13. mars næstkomandi.

10.1.2011

jQuery fyrir auglżsingar ķ farsķmum

Adobe leggur nú áherslu á að nota jQuery fyrir auglýsingahönnun í farsímum með Dreamweaver. Að mati Adobe er jQuery fljótlegasta lausnin fyrir notendur vefhönnunarforrita til að koma auglýsingum í farsímaumhverfið. jQuery er auðvelt að tileinka sér og fljótlegt að setja upp auglýsingar í því umhverfi, þetta virðist vera skynsamleg lausn fyrir grafíska hönnuði sem vilja bæta farsímum við þá miðla sem þeir geta þjónað.

Prenttæknisvið býður upp á námskeið í jQuery 21. mars 2011 með Berglind Káradóttur. Skráning hér.



Slóšin mķn:

Forsķša

Heim

Forsķša IŠUNNARIDAN.IS

Stjórnborš

Minnka letur Upphaflegt letur Stękka letur Senda žessa sķšu Prenta žessa sķšu Veftré Hamur fyrir sjónskerta

Mynd