16.9.2010
Morgunfundur um rafbækur 8. október - skráning í fullum gangi
Nú stendur yfir skráning þátttakenda á morgunfund á rafbækur sem Xplor Ísland og IÐAN fræðslusetur gangast fyrir þann 8. október kl. 8.30 - 10.00. Nánari lýsing á fundinum er hér.
Á fundinum mun Leon Baird ásamt þeim Árna Matthíassyni og Einari Hauki Reynissyni kynna iPad og Kindle rafbækurnar möguleika þeirra og kosti. Öllum er heimil þátttaka á meðan húsrúm leyfir. Skráning hér.
14.9.2010
Helmingur nemenda lýkur ekki starfsnámi í Noregi
Helmingur norskra nemenda í iðn- og starfsnámi lýkur ekki námi segir í frétt vefútgáfu Aftenpostens í Noregi. Af þeim 3161 nemanda sem hóf nám í starfsmenntaskólum í Osló luku einungis 51% reglubundnu fimm ára námi. Að mati Gunn Elisabeth Birkelund prófessors í félagsfræði er sterk fylgni milli árangurs í grunnskóla og brottfalls í framhaldsskóla. Þeim sem gekk illa í grunnskóla gekk jafnilla í starfsnámi. Að mati Birkelund höfða starfsmenntabrautir ekkert betur til þeirra sem standa sig illa í grunnskóla. Þeir falla brott engu að síður. Hún telur því að starfsmenntabrautir komi ekki betur til móts við þarfir þeirra nemenda sem ná ekki árangri í bóknámi. Hérlendis hefur verið nokkur umræða um brottfall úr framhaldsskóla og sýnt þykir að of stór hluti nemenda fellur brott úr námi. Það er áhyggjuefni og ekki einsýnt um lausnir á því vandamáli.
8.9.2010
Námsvísir haustannar er kominn út
Fjöldi spennandi námskeiða er í boði hjá IÐUNNI á haustönninni. Við hvetjum alla til að skoða vel úrvalið, jafnt fagtengdu námskeiðin sem og stjórnunar- og tölvunámskeiðin. Námsvísinum er dreift til allra félagsmanna okkar sem eiga von á honum í dag eða næstu daga. Einnig er hægt að nálgast námsvísinn hér.
Við hlökkum til að starfa með ykkur í vetur og hvetjum ykkur til að hafa samband við okkur í síma 590-6400 ef frekari upplýsinga er þörf.
Bestu kveðjur,
Starfsfólk IÐUNNAR fæðsluseturs
6.9.2010
Morgunfundur um rafbækur 8. október
Ráðgert er að halda morgunfund um rafbækur 8. október frá kl. 8.30-10.00. Á fundinum munu þrír sérfræðingar um Kindle og iPad fjalla um rafbækur og helstu eiginleika þeirra. Leon Baird sem er breskur sérfræðingur um forritun fyrir rafbækur, iPad og Kindle mun halda stutta fræðslulotu á miðvikudag og fimmtudag 6. og 7. október. Markmið fundarins er að kynnast rafbókum, eiginleikum þeirra, kostum og göllum. Fundurinn verður haldinn hér í Skúlatúni 2, 6. hæð. Boðið verður upp á kaffi.
Á seinni fundum verður fjallað um tækifæri og ógnanir sem tilkoma rafbóka hefur í för með sér fyrir útgáfu- og upplýsingaiðnað. Þeir fundir eru ráðgerðir í byrjun nóvember og desember. Dagsetningar verða gefnar út um leið og þær liggja fyrir.
Leit
Mynd











