Beint á leiðarkerfi vefsins

21.1.2010

Stefnumótun IÐUNNAR í fullum gangi

Stefnumotun hopur 2

Stefnumótun IÐUNNAR er nú fullum gangi. Í nóvember hittust fulltrúar eigenda og starfsmenn á fundi á Hótel Heklu og mótuðu hugmyndir til framtíðar með Davíð Lúðvíkssyni frá Samtökum iðnaðarins. Nú í ársbyrjun hafa verið myndaðir hópar sem vinna úr þeim tillögum að verkefnum sem komu fram í nóvember. Fjórir hópar starfa nú að mótun verkefna sem síðan verða lögð fyrir stjórn IÐUNNAR. Nú í vikunni hittist hópur 2 sem fjallar um markaðsmál og kynningu á starfsemi IÐUNNAR. Hópinn leiða Björn M. Sigurjónsson og Iðunn Kjartansdóttir en hópinn skipa auk þeirra Haraldur Nelson, Halldór A. Guðmundsson, Oddgeir Þór Gunnarsson, Ólafur Magnússon, Sveinn Ingason, Þorsteinn Gunnarsson og Gylfi Einarsson. (Mynd: Björn M.)

7.1.2010

Námsvísir vorannar 2010 er kominn út

Forsíða námsvísis 2010Námsvísir vorannar er kominn út. Við hvetjum alla til að kynna sér framboð á námskeiðum og hafa samband við okkur ef spurningar vakna.

 

Skráning fer fram á heimasíðu eða í síma 590-6400.

 

Hægt er að hlaða niður PDF útgáfu af námsvísinum hér.

 

Kveðja, Starfsfólk IÐUNNAR fræðsluseturs

4.1.2010

Rafbókin Kindle kemur til Íslands

Rafbók Amazon.com, Kindle er nú komin til Íslands. Nánar tiltekið eru tvö eintök af rafbókinni til á prenttæknisviði IÐUNNAR sem eru ætluð til kynningar fyrir prentiðnaðinn. Ráðgert er að halda stuttan fund þar sem menn geta handfjatlað Kindle og áttað sig á hvaða möguleikar fylgja rafbókavæðingunni. Tilkynning um fundinn verður send út innan fárra daga.


Slóðin mín:

Forsíða

Heim

Forsíða IÐUNNARIDAN.IS

Stjórnborð

Minnka letur Upphaflegt letur Stækka letur Senda þessa síðu Prenta þessa síðu Veftré Hamur fyrir sjónskerta

Mynd