22.12.2010
Upplýsingatækniskólinn fær nýjar tölvur
Prenttæknisvið IÐUNNAR afhenti á dögunum Upplýsingatækniskólanum 19 iMac tölvur til nota við kennslu í upplýsinga- og
fjölmiðlagreinum. Tölvurnar koma sér vel við endurnýjun tölvukosts Upplýsinga-tækniskólans.Tölvurnar eru iMac með 21" skjá, 3.06 Ghz örgjörva og
500 GB hörðum diski. Þær eru nægilega öflugar til að keyra öll nýjustu forritin
sem í boði eru. Ekki síst við kennslu í gerð og hönnun rafbóka sem munu taka
markaðinn með trompi á næstu árum.
Á mynd frá hægri: Jón B. Stefánsson skólameistari Tækniskólans, Björn M. Sigurjónsson sviðsstjóri prenttæknisviðs IÐUNNAR,Ómar Örn Magnússon deildarstjóri upplýsingatæknideildar, Bjargey Gígja Gísladóttir skólastjóri upplýsingatækniskólans, Tryggvi Jóhannsson kerfisstjóri, Baldur Gíslason skólameistari, Haraldur Dean Nelson forstöðumaður upplýsingatækni- og prentsviðs SI, Georg Páll Skúlason formaður Fbm.
10.11.2010
Kristín Ragna kennir í Gerðubergi
Námskeið 15. og 17. nóvember
kl. 20-22
Umsjón: Kristín Ragna
Gunnarsdóttir
Á námskeiðinu Upp sé ég koma öðru sinni
.... skoðar Kristín Ragna Gunnarsdóttir norrænar goðsagnir sem efnivið
til sköpunar. Hún hefur sjálf unnið með goðafræðina á mismunandi hátt;
í bókarformi, sem veggmyndir, hannað sýningu fyrir ferðamenn, sett upp
barnasýningu og er að vinna að teiknimynd sem byggir á Völuspá. Á námskeiðinu
segir Kristín frá vinnunni að baki þessara verka og skoðar listaverk nokkurra
annarra listamanna sem hafa orðið fyrir áhrifum af þessum menningararfi
okkar. Hópurinn mun í sameiningu rýna í heim norrænna goðsagna og skoða
hann sem uppsprettu nýrra hugmynda. Námskeiðið er tilvalið fyrir alla þá
sem hafa áhuga á þessu efni og hyggjast nýta það sem kveikju að nýjum verkum.
Kristín Ragna er hönnuður og sýningarstjóri
sýningarinnar Ormurinn ógnarlangi sem nú stendur yfir í Gerðubergi
(sjá nánar hér).
Sýningin hefur hlotið afar góðar viðtökur jafnt barna sem fullorðina. Að
sýningunni koma fjölmargir aðilar, en nemendur Kristínar við Listaháskóla
Íslands og Iðuna fræðslusetur lögðu til hönnun og vinnu. Sýningin byggir
á norrænu goðafræðinni og á henni má m.a. sjá Fenrisúlfinn bundinn, Miðgarðsorm,
Surt og fleiri illfygli ásamt fésbókum goðanna. Nemendur námskeiðsins Upp
sé ég koma öðru sinni ... munu kynnast vinnunni að baki sýningunni
og ættu þeir sem eru í skapandi námi eða starfi því ekki að láta þetta
tækifæri til að skyggnast inn í skissubækur Kristínar Rögnu fram hjá sér
fara.
Kristín Ragna Gunnarsdóttir útskrifaðist
úr grafískri hönnun frá Myndlista- og handíðaskóla Íslands. Hún var gestanemi
í málun við sama skóla og lauk BA prófi í almennri bókmenntafræði og ritlist
frá Háskóla Íslands. Kristín Ragna er sjálfstætt starfandi teiknari, hugmyndasmiður
og kennari.
Skráning á gerduberg@reykjavik.is
eða í síma 575 7700.
Þátttökugjald er 6.000 kr. (ATH.
áður auglýst verð 8.000 kr.)
10.11.2010
Námskeið í innleiðingu rafrænna reikninga á vegum Staðlaráðs
Prenttæknisvið bendir aðildarfélögum á þetta námskeið Staðlaráðs.
Þann 18. nóvember næstkomandi heldur Staðlaráð námskeið um tæknilega innleiðingu rafrænna reikninga.
Námskeiðið er ætlað tæknimönnum sem annast útfærslu og innleiðingu á rafrænum reikningum, eins og sjá má af meðfylgjandi fréttatilkynningu.Skráning og nánari upplýsingar um námskeiðið eru á vef Staðlaráðs >>
http://www.stadlar.is/namskeid/rafraenn-taeknimenn/
8.11.2010
Arnar og Þórkatla hanna bókarkápu
Tveir þátttakendur af námskeiði í hönnun bókarkápu, fengu verkefni við að hanna bókarkápu á tvær af jólabókunum í ár. Arnar Guðmundsson hönnuður teiknaði kápu fyrir bókina Myndir af ættarmóti eftir Anton Helga Jónsson og Þórkatla Elín Sigurðardóttir teiknaði kápu fyrir bókina Stolnar raddir eftir Hugrúnu Hrönn Kristjánsdóttur. Báðar bækurnar koma út hjá Forlaginu núna fyrir jólin. Bæði Þórkatla og Arnar þróuðu hugmyndir sínar að bókarkápunum á námskeiði prenttæknisviðs hvar Kristín Ragna Gunnarsdóttir leiðbeindi.
8.11.2010
Þátttakendur IÐUNNAR sýna í Gerðubergi
Nemendur af námskeiðum IÐUNNAR tóku þátt í sýningu í Gerðubergi á dögunum. Þema sýningarinnar er Völuspá og norrænar goðsagnir enda heitir hún Ormurinn ógnarlangi. Sýningarstjóri og hönnuður sýningarinnar er Kristín Ragna Gunnarsdóttir en þátttakendur héðan frá IÐUNNI eru Arnar Guðmundsson, Auður Björnsdóttir, Ágústa Þórðardóttir, Fríða Blöndal, Gunnar Steinþórsson, Hrefna Stefánsdóttir, Ragnheiður Kristjánsdóttir og Þorbjörg Sigurðardóttir. Sýningin er opin til 13. mars 2011.
16.9.2010
Morgunfundur um rafbækur 8. október - skráning í fullum gangi
Nú stendur yfir skráning þátttakenda á morgunfund á rafbækur sem Xplor Ísland og IÐAN fræðslusetur gangast fyrir þann 8. október kl. 8.30 - 10.00. Nánari lýsing á fundinum er hér.
Á fundinum mun Leon Baird ásamt þeim Árna Matthíassyni og Einari Hauki Reynissyni kynna iPad og Kindle rafbækurnar möguleika þeirra og kosti. Öllum er heimil þátttaka á meðan húsrúm leyfir. Skráning hér.
14.9.2010
Helmingur nemenda lýkur ekki starfsnámi í Noregi
Helmingur norskra nemenda í iðn- og starfsnámi lýkur ekki námi segir í frétt vefútgáfu Aftenpostens í Noregi. Af þeim 3161 nemanda sem hóf nám í starfsmenntaskólum í Osló luku einungis 51% reglubundnu fimm ára námi. Að mati Gunn Elisabeth Birkelund prófessors í félagsfræði er sterk fylgni milli árangurs í grunnskóla og brottfalls í framhaldsskóla. Þeim sem gekk illa í grunnskóla gekk jafnilla í starfsnámi. Að mati Birkelund höfða starfsmenntabrautir ekkert betur til þeirra sem standa sig illa í grunnskóla. Þeir falla brott engu að síður. Hún telur því að starfsmenntabrautir komi ekki betur til móts við þarfir þeirra nemenda sem ná ekki árangri í bóknámi. Hérlendis hefur verið nokkur umræða um brottfall úr framhaldsskóla og sýnt þykir að of stór hluti nemenda fellur brott úr námi. Það er áhyggjuefni og ekki einsýnt um lausnir á því vandamáli.
8.9.2010
Námsvísir haustannar er kominn út
Fjöldi spennandi námskeiða er í boði hjá IÐUNNI á haustönninni. Við hvetjum alla til að skoða vel úrvalið, jafnt fagtengdu námskeiðin sem og stjórnunar- og tölvunámskeiðin. Námsvísinum er dreift til allra félagsmanna okkar sem eiga von á honum í dag eða næstu daga. Einnig er hægt að nálgast námsvísinn hér.
Við hlökkum til að starfa með ykkur í vetur og hvetjum ykkur til að hafa samband við okkur í síma 590-6400 ef frekari upplýsinga er þörf.
Bestu kveðjur,
Starfsfólk IÐUNNAR fæðsluseturs
6.9.2010
Morgunfundur um rafbækur 8. október
Ráðgert er að halda morgunfund um rafbækur 8. október frá kl. 8.30-10.00. Á fundinum munu þrír sérfræðingar um Kindle og iPad fjalla um rafbækur og helstu eiginleika þeirra. Leon Baird sem er breskur sérfræðingur um forritun fyrir rafbækur, iPad og Kindle mun halda stutta fræðslulotu á miðvikudag og fimmtudag 6. og 7. október. Markmið fundarins er að kynnast rafbókum, eiginleikum þeirra, kostum og göllum. Fundurinn verður haldinn hér í Skúlatúni 2, 6. hæð. Boðið verður upp á kaffi.
Á seinni fundum verður fjallað um tækifæri og ógnanir sem tilkoma rafbóka hefur í för með sér fyrir útgáfu- og upplýsingaiðnað. Þeir fundir eru ráðgerðir í byrjun nóvember og desember. Dagsetningar verða gefnar út um leið og þær liggja fyrir.
12.8.2010
IÐAN í fjölmiðlum
Fréttablaðið greindi frá námskeiðum í Myndskreytingu og frásagnarteikningu sem Kristín Ragna Gunnarsdóttir kennir á prenttæknisviði IÐUNNAR. Námskeið Kristínar Rögnu hefjast upp úr miðjum september ásamt öðrum námskeiðum prenttæknisviðs. Hér má lesa viðtalið við Kristínu.
4.8.2010
Námskeið IÐUNNAR á haustönn 2010
15.6.2010
Nýsveinn í grafískri miðlun
Heiðrún Björt Sigurðardóttir tók við sveinsbréfi í grafískri miðlun föstudaginn 11. júní síðastliðinn. Heiðrún Björt var að þessu sinni eini nýsveinninn í upplýsinga- og fjölmiðlagreinum en vanalega eru um 20 nýsveinar á hverju vori í prentun, bókbandi og grafískri miðlun.
Athöfnin var því með hófstilltu sniði en Heiðrúnu var boðið í Skúlatúnið ásamt foreldrum, meistara og sveinsprófsnefnd. Athöfnin er í boði Félags bókagerðarmanna og Samtaka iðnaðarins sem hefðinni samkvæmt bjóða nýsveina velkomna til starfa. Sveinsbréfið afhenti Hjörtur Guðnason formaður sveinsprófsnefndar í grafískri miðlun og Hildur Elín Vignir afhenti gjafabréf frá IÐUNNI.
Á myndinni eru Jónas Gunnarsson framkvæmdastjóri Expo, meistari Heiðrúnar og Hjörtur Guðnason formaður sveinsprófsnefndar í grafískri miðlun.
14.6.2010
Fyrirlestraröð um rafbækur í bígerð
5.5.2010
Ash not Flash! Flash námskeiði með Leon Baird frestað....
Vegna öskufalls í háloftunum eru flugsamgöngur milli Bretlands og Íslands ótryggar á næstu dögum. Það hefur áhrif á Leon Baird sem ætlaði að fljúga til okkar og kenna Flash námskeið 10. - 14. maí. n.k. Námskeiðinu með honum er því frestað. Þetta er þó ekki eina óvissan hvað varðar Flash því óljóst er hvort verður ofan á Html.5 sem Internet Explorer 9 styður eða Flash sem ekki er tækt á iPad.
Það eina sem er ljóst er að við tökum upp þráðinn í haust með þær lausnir sem markaðurinn krefst.
29.4.2010
Uppselt á byrjendanámskeið í Flash!
29.4.2010
Sérfræðingar PIRA international í umbúðahönnun og prentun
Tveir sérfræðingar í umbúðahönnun og prentun halda málstofu hérlendis þann 17. maí nk. Málstofan er í tveimur hlutum. Fyrri hlutinn er um markaðsrannsóknir og markaðsmál fyrir umbúðahönnun og prentun. Nick Waite, sérfræðingur í markaðsrannsóknum PIRA heldur fyrirlestur um þróun og horfur í umbúðahönnun og prentun fyrir hádegi. Seinni hlutinn er um hönnun umbúða þar sem Simon Smith hönnuður og sérfræðingur PIRA í umbúðahönnun fjallar um umbúðaprentun frá sjónarhóli hönnunar.
Málstofan verður haldin á Grand Hótel, sem fyrr segir þann 17. maí frá kl. 10.30 - 14.30. Skráning hér.
29.4.2010
Bein útsending á vefnum um Flash CS5
Adobe hefur nú gefið út CS5 svítuna sem ætla má að verði spennandi útgáfa af þessum frábæru umbrotsforritum. Mánudaginn 3. maí nk. verður bein útsending þar sem Flash CS5 verður sérstaklega tekið til kostanna. Fyrir þá sem vilja verða vitni að þessum ,,heimsviðburði" er einfaldast að skrá sig hér.
29.4.2010
Flash vika í maí!
Leon Baird sem er okkur að góðu kunnur sem frábær kennari í Flash kennir þétta dagskrá 10. - 14. maí í Flash CS4. Fyrra námskeiðið er fyrir byrjendur í Flash og verður kennt 10 og 11. maí nk. frá kl. 13.00 - 22.00 í Tölvuhúsi Tækniskólans. Frábært námskeið fyrir þá sem vilja setja sig inn í Flash CS4.
Seinna námskeiðið verður í beinu framhaldi þar sem Leon kennir kóðun og ítarlegri action scripting á þriggja daga stífu námskeiði. Sama tíma dags 12., 13. og 14. maí. Þeir sem halda út þetta bútkamp í Flash ættu að vera prýðilega færir í flestan sjó við skjámiðlun og skiltagerð á vefnum. Skráning hér!
Svo skemmtilega vill til að Adobe hefur útnefnt þessa sömu viku sérstaka kynningarviku í Flash CS5 (sem verður kennt í haust). Fyrir áhugasama er meira hér.
18.2.2010
Rífandi aðsókn að námskeiðum prenttæknsviðs
Góð aðsókn er að námskeiðum prenttæknisviðs á vorönn 2010 en alls eru 15 námskeið í gangi. Fullt er á Flash námskeið með Leon Baird og biðlisti eftir næsta. Sviðsstjóri mun setja upp nýtt námskeið í Flash um leið og fært er. Þá er von á sérfræðingum frá Heidelberg og Flint sem munu fjalla um farfa og valsaskipti í byrjun mars. Fullt er á valsaskiptinámskeiðið og óðum að fyllast á farfanámskeiðið. Önnur námskeið í umbroti og forvinnslu eru einnig orðin þéttsetin og aðeins um 2-3 sæti laus á hvert þeirra. Áhugasamir eru hvattir til að skrá sig strax til að ná sæti á námskeiðunum.
21.1.2010
Stefnumótun IÐUNNAR í fullum gangi
Stefnumótun IÐUNNAR er nú fullum gangi. Í nóvember hittust fulltrúar eigenda og starfsmenn á fundi á Hótel Heklu og mótuðu hugmyndir til framtíðar með Davíð Lúðvíkssyni frá Samtökum iðnaðarins. Nú í ársbyrjun hafa verið myndaðir hópar sem vinna úr þeim tillögum að verkefnum sem komu fram í nóvember. Fjórir hópar starfa nú að mótun verkefna sem síðan verða lögð fyrir stjórn IÐUNNAR. Nú í vikunni hittist hópur 2 sem fjallar um markaðsmál og kynningu á starfsemi IÐUNNAR. Hópinn leiða Björn M. Sigurjónsson og Iðunn Kjartansdóttir en hópinn skipa auk þeirra Haraldur Nelson, Halldór A. Guðmundsson, Oddgeir Þór Gunnarsson, Ólafur Magnússon, Sveinn Ingason, Þorsteinn Gunnarsson og Gylfi Einarsson. (Mynd: Björn M.)
7.1.2010
Námsvísir vorannar 2010 er kominn út
Námsvísir vorannar er kominn út. Við hvetjum alla til að kynna sér framboð á námskeiðum og hafa samband við okkur ef spurningar vakna.
Skráning fer fram á heimasíðu eða í síma 590-6400.
Hægt er að hlaða niður PDF útgáfu af námsvísinum hér.
Kveðja, Starfsfólk IÐUNNAR fræðsluseturs
4.1.2010
Rafbókin Kindle kemur til Íslands
Leit
Mynd











