26.6.2009
Sautján nýsveinar fá sveinsbréf í bókiðngreinum
Sautján nýsveinar í bókiðngreinum fengu sveinsbréf afhent við hátíðlega athöfn þann 19. júní sl. Að þessu sinni luku 9 sveinar prófi í grafískri miðlun, 7 í prentun og 1 í bókbandi. Ásta María Sigmarsdóttir og Helgi Ó. Víkingsson hlutu viðurkenningar fyrir afburðaárangur á sveinsprófi. Athöfnin var hin hátíðlegasta að vanda og fór fram í blíðskaparveðri við góðar undirtektir. Tónlist var leikin, gestir nutu veitinga og gerður var góður rómur að athöfninni í hvívetna. Björn M. Sigurjónsson sviðsstjóri prenttæknisviðs afhenti nýsveinum blóm og gjafabréf á námskeið frá IÐUNNI fræðslusetri. Formenn sveinsprófsnefnda, þeir Tryggvi Þór Agnarsson, Hjörtur Guðnason og Theodór Guðmundsson afhentu sveinsbréf og Georg Páll Skúlason og Haraldur Dean Nelson veittu verðlaun fyrir framúrskarandi árangur á sveinsprófi.
26.6.2009
SOFIA verkefnið á Íslandi
SOFIA verkefnið sem er samvinnuverkefni Íslands, Frakklands og Spánar á vegum Leonardo starfsmenntaáætlunar Evrópusambandsins hélt vinnustofu á Íslandi 22.-24. júní sl. SOFIA verkefnið er yfirfærsluverkefni á rafrænum kennsluaðferðum sem CNA CEFAG skólinn í París hefur þróað á undanförnum áratug. Þátttakendur í vinnustofunni komu frá ITA sem er símenntamiðstöð í Aragon, CNA CEFAG skólanum í París , Borgarholtsskóla, Tækniskólanum og Flensborgarskóla. Verkefnið er tæplega hálfnað og felur í sér umtalsverðar nýjungar á sviði rafrænna kennsluhátta. Strax næsta haust má þess vænta að afurðir vinnustofunnar verði teknar til prófana í þremur skólum á Íslandi. Á myndinni eru Marie Rouffort (FR), Manuel Castro (FR), Hákon Már Oddson (IS), Brynhildur Björnsdóttir (IS) og Antoine Pierru (IS). Auk þeirra tóku þátt Elena Pallares (ESP), Reyes (ESP), Halldór Árni Sveinsson (IS), Alfonso Alvarez (ESP), Rosana Monton (ESP) og Björn M. Sigurjónsson (IS) sem stýrir verkefninu fyrir hönd prenttæknisviðs IÐUNNAR.
4.6.2009
Afhending sveinsbréfa í bókiðngreinum 19. júní
Afhending sveinsbréfa í bókiðngreinum fer fram þann 19. júní kl. 17.00 að Hverfisgötu 21, í húsi FBM. Athöfnin verður sem fyrr með hátíðlegu sniði, viðurkenningar verða veittar fyrir framúrskarandi námsárangur og gestir njóta veitinga. Þá má vænta tónlistaratriða og myndatökur verða með hefðbundnu sniði. Nýsveinar, aðstandendur þeirra, meistarar og aðrir velunnarar eru hvattir til að njóta stundarinnar með nýju fagfólki í bókiðngreinum.
3.6.2009
Norrænt bókband opnar um helgina
Jam hópurinn (hópur norrænna bókbindara sem stundar listband á bókum) opnar sýningu á norrænu listbókbandi í Þjóðmenningarhúsinu við Hverfisgötu 5. júní kl. 16.00. Frú Vigdís Finnbogadóttir fyrrverandi forseti Íslands opnar sýninguna. Á sýningunni getur að líta listbókband norrænna bókbindara. Hver þátttakandi fær handrit að bók til að binda inn á sem fegurstan hátt og afrakstur þeirrar vinnu verður til sýnis í Þjóðmenningarhúsinu fram eftir sumri. Jam hópurinn hefur starfað um árabil og telur á annan tug íslenskra listbókbindara.
Leit
Mynd











