20.11.2009
Hannað í málm lokið
Hannað í málm lauk með sýningu þátttakenda á smíðisgripum sínum og hönnun fimmtudaginn 19. nóvember í IÐUNNI fræðslusetri. Fjöldi gesta lagði leið sína á sýninguna þar sem þátttakendur greindu frá verkefninu og reynslu sinni af því að taka þátt í því. Verkefnið hófst 1. maí s.l. og hefur því staðið í sex mánuði.
Þátttakendum var skipt í tvo hópa sem unnu með Járnsmiðju Óðins að hönnun Detox stól og Teknís að hönnun hliðgrinda fyrir Norðurmýri í Reykjavík. Teikningar og prótótýpur má sjá næstu daga hjá IÐUNNI að Skúlatúni 2. (Á mynd f.v. Jósef Gíslason, Katrín Jónsdóttir, Óðinn Jónsson vélsm. Óðins, Matthildur Jóhannsdóttir, Arnar Jónsson, Þorleifur Eggertsson og Jón Þór Sigurðsson frá Teknís).
3.11.2009
Hönnuðu Detox stól og hliðgrindur!
Þann 1. maí hófst tilraunaverkefnið Hannað í málm, með stuðningi Starfsmenntasjóðs.
IÐAN fræðslusetur setti upp tvo tilraunahópa hönnuða í atvinnuleit, sem störfuðu með málmiðnfyrirtækjunum Járnsmiðju Óðins og Teknís.
Verkefnið var að endurhanna smíðisgrip úr málmi og koma honum í framleiðslu og á markað. Það heppnaðist. Annar hópurinn hannaði Detox stól. Hinn hópurinn hannaði nútímalegar og töff hliðgrindur.
Lokakynning á niðurstöðum verður 19. nóvember kl. 17.00 í IÐUNNI Skúlatúni 2.
Verkefnið var styrkt af Starfsmenntasjóði og var útnefnt fyrirmyndarverkefni ársins 2009 af sjóðnum.
Leit
Mynd











