Beint á leiðarkerfi vefsins

20.11.2009

Hannað í málm lokið

HÍM  hópurinnHannað í málm lauk með sýningu þátttakenda á smíðisgripum sínum og hönnun fimmtudaginn 19. nóvember í IÐUNNI fræðslusetri.  Fjöldi gesta lagði leið sína á sýninguna þar sem þátttakendur greindu frá verkefninu og reynslu sinni af því að taka þátt í því.  Verkefnið hófst 1. maí s.l. og hefur því staðið í sex mánuði.

Þátttakendum var skipt í tvo hópa sem unnu með Járnsmiðju Óðins að hönnun Detox stól og Teknís að hönnun hliðgrinda fyrir Norðurmýri í Reykjavík.  Teikningar og prótótýpur má sjá næstu daga hjá IÐUNNI að Skúlatúni 2.  (Á mynd f.v. Jósef Gíslason, Katrín Jónsdóttir, Óðinn Jónsson vélsm. Óðins, Matthildur Jóhannsdóttir, Arnar Jónsson, Þorleifur Eggertsson og Jón Þór Sigurðsson frá Teknís).

3.11.2009

Hönnuðu Detox stól og hliðgrindur!

Þann 1. maí hófst  tilraunaverkefnið Hannað í málm, með stuðningi Starfsmenntasjóðs.
IÐAN  fræðslusetur setti upp tvo tilraunahópa hönnuða í atvinnuleit, sem störfuðu  með málmiðnfyrirtækjunum Járnsmiðju Óðins og Teknís.
Verkefnið var að  endurhanna smíðisgrip úr málmi og koma honum í framleiðslu og á markað. Það heppnaðist. Annar hópurinn hannaði Detox stól. Hinn hópurinn  hannaði nútímalegar og töff hliðgrindur.

Lokakynning á niðurstöðum verður 19. nóvember kl. 17.00 í IÐUNNI Skúlatúni 2.
Verkefnið var styrkt af Starfsmenntasjóði og var útnefnt  fyrirmyndarverkefni ársins 2009 af sjóðnum.

23.10.2009

Breytingar á sviðsstjórn prenttæknisviðs

Á síðasta sviðsstjórnarfundi prenttæknisviðs létu þeir Sveinbjörn Hjálmarsson og Kristján G. Bergþórsson af setu í sviðsstjórn. Í þeirra stað koma Sölvi Sveinbjörnsson og Guðbrandur Magnússon.

Þeim Sveinbirni og Kristjáni voru þökkuð vel unnin störf í þágu prentiðnaðar á Íslandi en þeir hafa gegnt trúnaðarstörfum fyrir iðnaðinn í hartnær tvo áratugi. 

Stjórn prenttæknisviðs býður þá Sölva og Guðbrand velkomna. Guðbrandur er framkvæmdastjóri Landsprents og hefur áratuga reynslu af rekstri í prentiðnaði. Sölvi hefur nýtekið við framkvæmdastjórn Umslags og er því fulltrúi ungu kynslóðarinnar í prentiðnaði. 

6.10.2009

Rúmlega 200 hafa setið RGB námskeið

Þátttakendur á RGB námskeiðum Ólafs Brynjólfssonar eru nú komnir yfir 200. Góður rómur er gerður að námskeiðunum og er ljóst að þessi nýbreytni mun ganga í gegn af miklum krafti. Fyrirtæki í prentiðnaði hafa tekið Ólafi með kostum og kynjum og augljóst mál að mikill sparnaður hlýst af breyttu vinnulagi auk þess sem sparnaður er þó nokkur í farfagjöf. Þeir sem vilja komast á RGB námskeið gera best í því að hafa samband við Björn M. Sigurjónsson sviðsstjóra prenttæknisviðs með því að senda póst á bjorn@idan.is.

 

21.9.2009

Starfsmenn GuðjónÓ fá námskeið í RGB vinnuferlinu

Starfsmenn GuðjónÓ fengu námskeið í RGB vinnuferlinu hjá Ólafi Brynjólfssyni sem fer nú milli prentsmiðja og breiðir út erindið. Ólafur fer í gegnum nýja prentprófíla, fer yfir vinnustöðvar í forvinnslunni og stillir skjái þar sem það á við. Vel er tekið á móti Ólafi í hvívetna og er ekki annað að sjá en verkefnið gangi að óskum. Þeir sem óska eftir heimsókn Ólafs hafi samband við Björn í síma 5906400 eða með tölvupósti á bjorn@idan.is.

18.9.2009

Stefnumótun prenttæknisviðs

Stefnumótun IÐUNNAR fer fram 8. og 9. október nk. Því til undirbúnings hafa einstök svið IÐUNNAR haldið stefnumótunarfundi þar sem áherslur og framtíðaráætlanir eru ræddar.

Prenttæknisvið hélt sína stefnumótun 15. september s.l. með 16 þátttakendum víðs vegar að úr prentiðnaðinum.  Björn M. Sigurjónsson sviðsstjóri og Vilmar Þór Pétursson frá Capacent leiddu fundinn en fundarmenn tóku svo til við verkefnavinnu. Niðurstöður fundarins verða innlegg í  stefnumótun IÐUNNAR 8. og 9. október nk. 

Á myndinni sjást fjórir fulltrúar hver úr sinni áttinni í þungum þönkum en þeir eru frá vinstri, Sölvi Sveinbjörnsson, Georg Páll Skúlason, Ólafur Stolzenwald og Kalman Le Sage de Fontenay. 

14.9.2009

RGB námskeið í fullum gangi!

Nemendur á námskeiði Ólafs BrynjólfsÓlafur Brynjólfsson fer nú eins og stormsveipur um fyrirtæki í prentiðnaði og innleiðir nýtt verklag við forvinnslu mynda og litgagna. Aðferðin hefur verið kölluð RGB vinnuflæði og leysir úr vanda þeirra sem hafa glímt við ójafna CMYK vinnslu milli hönnuða, ljósmyndara og prentsmiðja. Vinnuhópur skipaður af lykiltæknimönnum úr prentiðnaði þróaði lausnina sem er líkt við byltinguna sem varð þegar .pdf var innleitt fyrir 10 árum.

Þeir sem vilja fá Ólaf í heimsókn á sinn vinnustað hafa samband við Björn sviðsstjóra prenttæknisviðs IÐUNNAR í síma 5906400 eða með tölvuskeyti á bjorn@idan.is 

(Á myndinni eru ánægðir starfsmenn Svansprents að loknu námskeiði hjá Ólafi).

31.8.2009

Skipuleg nálgun hugmyndavinnu

Starfsfólki í upplýsinga- og fjölmiðlagreinum býðst nú námskeið í skipulegri nálgun hugmyndavinnu. Námskeiðið hefst mánudaginn 7. september og er kennt á mánudögum og miðvikudögum út september. 

Kristín Ragna Gunnarsdóttir grafískur hönnuður kennir námskeiðið þar sem fjallað verður um aðferðir við að byggja upp hugmyndabanka, og vinna úr hugmyndum við grafísk verkefni. 

Skráning á námskeiðið er í síma 5906400 og hér.

17.8.2009

Podcasting með Chris Aires 9. nóvember

Chris Aires kennir podcasting á stuttu námskeiði prenttæknisviðs 9. nóvember næstkomandi. Námskeiðið hefst kl. 13.00 og stendur yfir til kl. 20.00. Podcasting er að verða vinsæl aðferð við miðlun dagskrárefnis og allir sem starfa við framleiðslu dagskrárefnis, hvort sem er í fjölmiðlum eða skólum ættu að hafa Podcasting á valdi sínu. Podcasting hentar hvort tveggja fyrir hljóðvarp og sjónvarp.

Podcasting er afar einfalt og fljótlegt að læra. Tæknin er sáraeinföld, aðeins þarf hljóðnema eða upptökuvél, tölvu og nettengingu. Hér er tengill á einfalda útskýringu á podcasting af www.youtube.com.  Verði fyrir námskeiðið er stillt í hóf eða aðeins kr. 5.100 fyrir aðildarfélaga IÐUNNAR.

14.8.2009

Sveinspróf í ljósmyndun

Sveinspróf í ljósmyndun verða haldin í vikunni 5.- 9. október n.k. ef næg þátttaka fæst.

Umsóknarfrestur hefur verið framlengdur til 5. september.

Með umsókn skal leggja fram afrit af námssamningi, lífeyrissjóðsyfirlit og burtfararskírteini frá skóla.

Leyfisgjald próftaka er kr. 5.500.

Umsóknareyðublöð má nálgast  heimasíðu okkar og á skrifstofunni.

10.8.2009

Hannað í málm - AutoCad námskeið hafið!

Hannað í málm nemendur AutoCadÞeir voru fullir einbeitingar nemendur á AutoCad námskeiði Finns Fróðasonar í morgun. Námskeiðið er haldið sérstaklega fyrir þátttakendur í Hannað í málm. Alls taka þrjú fyrirtæki og 8 hönnuðir þátt í verkefninu en verkefnið er að endurhanna smíðisgrip úr málmi. Verkefnið er styrkt af Starfsmenntasjóði.

26.6.2009

Sautján nýsveinar fá sveinsbréf í bókiðngreinum

Sautján nýsveinar í bókiðngreinum fengu sveinsbréf afhent við hátíðlega athöfn þann 19. júní sl. Að þessu sinni luku 9 sveinar prófi í grafískri miðlun, 7 í prentun og 1 í bókbandi. Ásta María Sigmarsdóttir og Helgi Ó. Víkingsson hlutu viðurkenningar fyrir afburðaárangur á sveinsprófi. Athöfnin var hin hátíðlegasta að vanda og fór fram í blíðskaparveðri við góðar undirtektir. Tónlist var leikin, gestir nutu veitinga og gerður var góður rómur að athöfninni í hvívetna. Björn M. Sigurjónsson sviðsstjóri prenttæknisviðs afhenti nýsveinum blóm og gjafabréf á námskeið frá IÐUNNI fræðslusetri. Formenn sveinsprófsnefnda, þeir Tryggvi Þór Agnarsson, Hjörtur Guðnason og Theodór Guðmundsson afhentu sveinsbréf og Georg Páll Skúlason og Haraldur Dean Nelson veittu verðlaun fyrir framúrskarandi árangur á sveinsprófi.

26.6.2009

SOFIA verkefnið á Íslandi

SOFIA wshopSOFIA verkefnið sem er samvinnuverkefni Íslands, Frakklands og Spánar á vegum Leonardo starfsmenntaáætlunar Evrópusambandsins hélt vinnustofu á Íslandi 22.-24. júní sl. SOFIA verkefnið er yfirfærsluverkefni á rafrænum kennsluaðferðum sem CNA CEFAG skólinn í París hefur þróað á undanförnum áratug. Þátttakendur í vinnustofunni komu frá ITA sem er símenntamiðstöð í Aragon, CNA CEFAG skólanum í París , Borgarholtsskóla, Tækniskólanum og Flensborgarskóla. Verkefnið er tæplega hálfnað og felur í sér umtalsverðar nýjungar á sviði rafrænna kennsluhátta. Strax næsta haust má þess vænta að afurðir vinnustofunnar verði teknar til prófana í þremur skólum á Íslandi. Á myndinni eru Marie Rouffort (FR), Manuel Castro (FR), Hákon Már Oddson (IS), Brynhildur Björnsdóttir (IS) og Antoine Pierru (IS). Auk þeirra tóku þátt Elena Pallares (ESP), Reyes (ESP), Halldór Árni Sveinsson (IS), Alfonso Alvarez (ESP), Rosana Monton (ESP) og Björn M. Sigurjónsson (IS) sem stýrir verkefninu fyrir hönd prenttæknisviðs IÐUNNAR.

4.6.2009

Afhending sveinsbréfa í bókiðngreinum 19. júní

Afhending sveinsbréfa í bókiðngreinum fer fram þann 19. júní kl. 17.00 að Hverfisgötu 21, í húsi FBM. Athöfnin verður sem fyrr með hátíðlegu sniði, viðurkenningar verða veittar fyrir framúrskarandi námsárangur og gestir njóta veitinga.  Þá má vænta tónlistaratriða og myndatökur verða með hefðbundnu sniði. Nýsveinar, aðstandendur þeirra, meistarar og aðrir velunnarar eru hvattir til að njóta stundarinnar með nýju fagfólki í bókiðngreinum.

3.6.2009

Norrænt bókband opnar um helgina

Jam hópurinn (hópur norrænna bókbindara sem stundar listband á bókum) opnar sýningu á norrænu listbókbandi í Þjóðmenningarhúsinu við Hverfisgötu 5. júní kl. 16.00. Frú Vigdís Finnbogadóttir fyrrverandi forseti Íslands opnar sýninguna. Á sýningunni getur að líta listbókband norrænna bókbindara. Hver þátttakandi fær handrit að bók til að binda inn á sem fegurstan hátt og afrakstur þeirrar vinnu verður til sýnis í Þjóðmenningarhúsinu fram eftir sumri. Jam hópurinn hefur starfað um árabil og telur á annan tug íslenskra listbókbindara.

28.5.2009

Umfang náms og afdrif nemenda í upplýsinga- og fjölmiðlagreinum

Starfsgreinaráð í Upplýsinga- og fjölmiðlagreinum hefur látið Rannóknir og greiningu ehf kanna umfang náms og afdrif nemenda í upplýsinga- og fjölmiðlagreinum. Niðurstöður þeirrar rannsóknar verða kynntar á fundi SUF á Grand Hótel Reykjavík fimmtudaginn 4. júní kl. 15.00. Sigríður Kristín Hrafnkelsdóttir kynnir niðurstöður rannóknarinnar og ráðgjafa Alta stjórna verkefnum og hópavinnu í kjölfarið. Björn M. Sigurjónsson sviðsstjóri prenttæknisviðs Iðunnar setur fundinn. Fundarslit eru áætluð um kl. 16.30. Niðurstöður fundarins ásamt samantekt könnunarinnar verða gefnar út í kjölfarið. Þess er vænst að gögnin nýtist við endurritun námskrár í upplýsinga- og fjölmiðlagreinum. Verkefnið er styrkt af Starfsmenntasjóði.

18.5.2009

Hannað í málm hefst!

Hannað í málm hefst nú eftir nokkurn undirbúningstíma. Fyrsti fundur með þátttakendum, umsjónarmönnum og fyrirtækjum verður haldinn mánudaginn 25. maí kl. 15 hér að Skúlatúni 2. Þeir sem enn hafa áhuga á að taka þátt í verkefninu geta skráð sig. Eitt pláss er enn laust. Áhugasömum er bent á að senda póst til Björns M. Sigurjónssonar á bjorn@idan.is.

27.4.2009

Námskeið í hönnun bókakápa í maí

Kristín Ragna Gunnarsdóttir kennir námskeið í hönnun bókakápa í maí. Námskeiðið verður með sama sniði og önnur námskeið í hönnun sem verið hafa í vetur á vegum prenttæknisviðs. Kennt verður á mánudögum og fimmtudögum frá 9-12 frá og með öðrum mánudegi í maí.

Félag bókaútgefenda hefur góðfúslega látið í té handrit til að vinna með þannig að þátttakendur spreyta sig á raunhæfu verkefni, við að hanna bókakápur á handrit sem áætlað er að komi út um næstu jól. Skráning sem fyrr á hlekkin hér til vinstri og í síma 5906400.

24.4.2009

Enn nokkur pláss laus á hannað í málm!

Spútnik verkefnið Hannað í málm rennur í gang í annarri viku maí mánaðar. Enn eru örfá pláss laus í verkefnið en leitað er að hönnuðum, prentsmiðum, grafískum miðlurum, grafískum hönnuðum og öðrum sem hafa fagréttindi í hönnun en vilja víkka út atvinnumöguleika sína  með þekkingu á málmiðnhönnun. Verkefnið er hönnuðum að kostnaðarlausu en mun standa yfir í eina 6 mánuði með viðveru á námskeiðum að jafnaði 2svar í viku. Ekki verður kennt í júlí-mánuði og meginþungi verkefnisins áætlaður í ágúst og september.

Best er að skrá sig með því að senda póst á bjorn@idan.is eða hringja í 5906400

24.4.2009

Ben Willmore kennir Photshop 30. apríl nk.

Hinn geðþekki Íslandsvinur og Photoshop-gúrú Ben Willmore kennir á undraforritið Photoshop fimmtudaginn 30. apríl næstkomandi. Námskeiðið hefst kl. 09.00 á Grand Hótel Reykjavík við Sigtún og stendur yfir til kl. 17.00. Ben Willmore fer sérstaklega yfir nýjungar í CS4 (sjá eldri frétt) og mælst er til þess að þátttakendur hafi fartölvur sínar meðferðis. Ath. ekki er kennt í tölvustofu heldur er um sýnikennslu að ræða. Ben hefur áralanga reynslu af kennslu á photoshop og er einn af þekktari photoshop-gúrúum heims. Skráning á www.idan.is eða með því að smella á námskeið hér til vinstri og í síma 5906400.

26.3.2009

Hannað í málm leitar að hönnuðum

Ertu hönnuður, prentsmiður, grafískur hönnuður, grafískur miðlari eða vefhönnuður?
Viltu læra að hanna í þrívídd?
Geturðu unnið í hópi?
Viltu styrkja möguleika þína á vinnumarkaði?
Hannað í málm gæti verið tækifærið þitt.
Hafðu samband við IÐUNA fræðslusetur og taktu þátt í þinni eigin framtíð.

Til að ná sambandi:
Sími IÐUNNAR er 5906400
Netfangið er idan@idan.is
eða
bjorn@idan.is
eða
gylfi@idan.is

22.3.2009

Hannað í málm hlýtur styrk

Félagsmálaráðherra við styrkveitingunaStarfsmenntaráð auglýsti í janúar síðastliðnum eftir umsóknum um styrki til starfsmenntunar í atvinnulífinu. Að þessu sinni var lögð áhersla á gæðaverkefni sem tengjast erfiðri stöðu á vinnumarkaði og nýtast þeim hópum sem misst hafa atvinnu eða eru í sérstakri áhættu með að missa vinnuna.

Áhugaverðasta verkefnið að mati sjóðsins var verkefnið Hannað í málm sem unnið er í samstarfi málm- og véltæknisviðs og prenttæknisviðs IÐUNNAR fræðsluseturs. 

Félagsmálaráðherra Ásta Ragnheiður Jóhannesdóttir afhenti styrkinn og Björn M. Sigurjónsson kynnti verkefnið.

3.3.2009

Nigel French kennir InDesign CS4

Nigel French hinn geðþekki englendingur kennir nú námfúsum starfsmönnum úr upplýsinga- og fjölmiðlaiðnaði uppfærslur og nýjungar í InDesign CS4. Ekki var annað að sjá á þátttakendum en þeim hugnaðist tilsögn Nigels vel enda fagmaður á ferð. Námskeiðið spannar tvo daga og lýkur í dag um kl. 20.00

   

23.1.2009

Góð þátttaka á málmsuðunámskeiðum IÐUNNAR!

Mjög góð þátttaka hefur verið á málmsuðunámskeiðum IÐUNNAR. Fullskipað er á flest námskeið og nokkrir komnir á biðlista. Fleiri námskeið verða sett upp á vorönn. Námskeiðin eru haldin að Gylfaflöt 18 í glæsilegu kennsluhúsnæði málm og véltæknigreina. Margir hafa notað tækifærið í atvinnuleysinu og nýtt sér námskeiðsframboðið til að læra eitthvað nýtt. Eða eins og einn þátttakandi orðaði það:,,Ástandið er ekki gott en mér leiðist ekki enda nóg við að vera".

23.1.2009

Námsvísir IÐUNNAR kominn út!

Námsvísir IÐUNNAR vorið 2009 er nú kominn út. Honum hefur verið dreift til aðildarfyrirtækja IÐUNNAR auk starfsmenntaskóla, stéttarfélaga og annarra hópa sem IÐAN þjónar. Skráning á námskeið fer vel af stað og rétt að minna áhugasama á að skrá sig fyrr en síðar.

Námsvísi má hlaða niður hér

12.1.2009

Námskeið hafin á prenttæknisviði

Námskeið vorannar hófust í morgun á prenttæknisviði. Nemendur voru mættir galvaskir til leiks í vefmiðlun og Frásagnarteikningu. Enn er möguleiki að slást í hópinn út þessa viku. Örfá sæti eru laus á hvoru námskeiði fyrir sig. Skráning er á www.idan.is og í síma 5906400.

7.1.2009

Farfanámskeið með Michel Jochim

Farfanámskeið með Michel Jochim

Ætlað prenturum og fagmönnum í prentiðnaði.

Eins dags námskeið sem fjallar um efnafræði farfa og vatns. Ítarlega fjallað um fontalausnir og helstu álitaefni hvað þær varðar, blöndun og meðhöndlun.
Kennari er Michel Jochim sérfræðingur frá Horstmann Steinbekk í Þýskalandi.
Námskeiðið er kennt á ensku.

Tími: Þriðjudagur 13. janúar 2009 kl. 9.00-17.00
Lengd: 12 kennslustundir.

Fullt verð:32.100
Verð til aðila Iðunnar: 6.420

Skráning á www.idan.is og síma 5906400



Slóðin mín:

Forsíða

Heim

Forsíða IÐUNNARIDAN.IS

Stjórnborð

Minnka letur Upphaflegt letur Stækka letur Senda þessa síðu Prenta þessa síðu Veftré Hamur fyrir sjónskerta

Mynd