Beint á leiðarkerfi vefsins

24.9.2008

EUROSKILLS Rotterdam

Evrópska iðnnemakeppnin var haldin 18.-20. október s.l. Þriggja manna hópur af prenttæknisviði fór utan til að kynna sér sýninguna, þau Georg Páll Skúlason frá FBM, Hanna Þórunn Skúladóttir frá SI og Björn M. Sigurjónsson sviðsstjóri prenttæknisviðs IÐUNNARRotterdam. Um leið sátu þau málþing og fund EGIN samtakanna. Keppnin í upplýsinga- og fjölmiðlagreinum var athyglisverð fyrir margra hluta sakir. Keppt var í þriggjamanna liðum, grafísks miðlara, vefmiðlara og prentara. Keppnisverkefnið var að búa til vefgrafík, plaköt, bæklinga og dreifpóst fyrir skífuþeytarann Jean sem er þekktur skemmtikraftur í Hollandi.Íslenska sendinefndin safnaði nokkrum upplýsingum um keppnisreglur og fyrirkomulag keppninnar ytra sem verður nýtt við næstu iðnnemakeppni á Íslandi.

24.9.2008

Fjögur sæti laus á Lightroom með Nigel French

Góð þátttaka er á námskeið með Nigel French í Lightroom sem haldið verður 6. október n.k. Nú eru aðeins 4 sæti laus og fyrstur kemur fyrstur fær. Nigel French er okkur að góðu kunnur en hann var með framhaldsnámskeið í InDesign í fyrra við góðan orðstí. Nigel er lipur kennari með mikla reynslu af grafískri hönnun, ljósmyndun og auglýsingagerð.Hann rak eigin stofu í San Francisco þar til fyrir nokkrum árum að hann söðlaði um og flutti til heimaborgar sinnar London. 

Nigel verður einnig hér á landi 7. október. Þá er möguleiki að hann fari í fyrirtæki með s.k. ,,troubleshoot". Þá gengur leiðbeinandi á milli og starfsmenn umbrotsdeilda geta spurt um ákveðin vandamál sem þeir hafa eða hann bendir á hraðvirkari leiðir við vinnslu. Þeir sem hafa áhuga á því hafi samband við Björn M. Sigurjónsson sviðsstjóra prenttæknisviðs á bjorn@idan.is

24.9.2008

EUROSKILLS Rotterdam

Evrópska iðnnemakeppnin var haldin 18.-20. október s.l. Þriggja manna hópur af prenttæknisviði fór utan til að kynna sér sýninguna, þau Georg Páll Skúlason, Hanna Þórunn Skúladóttir og Björn M. Sigurjónsson. Um leið sátu þau málþing og fund EGIN samtakanna.  Keppnin í upplýsinga- og fjölmiðlagreinum var athyglisverð fyrir margra hluta sakir. Keppt var í þriggjamanna liðum, grafísks miðlara, vefmiðlara og prentara. Keppnisverkefnið var að búa til vefgrafík, plaköt, bæklinga og dreifpóst fyrir skífuþeytarann Jean sem er þekktur skemmtikraftur í Hollandi.Íslenska sendinefndin safnaði nokkrum upplýsingum um keppnisreglur og fyrirkomulag keppninnar ytra sem verður nýtt við næstu iðnnemakeppni á Íslandi. 

 

4.9.2008

Nýr námsvísir kemur út í dag!

Námsvísir IÐUNNAR kemur út í dag. Að vanda býður IÐAN upp á fjölbreytt námskeið fyrir aðildarfélaga. Meðal nýjunga má nefna námskeið í stjórnun og rekstri. T.d. má nefna námskeið um skuldastýringu og gengisvarnir, birgðastjórnun í iðnaði, framleiðslustjórnun iðnfyrirtækja, gæðastjórnun og móttöku viðskiptavina.

Fyrstu stjórnunar- og rekstrarnámskeið hefjast 15. september en þá hefst námskeið í framleiðslustjórnun í iðnaði.



Slóðin mín:

Forsíða

Heim

Forsíða IÐUNNARIDAN.IS

Stjórnborð

Minnka letur Upphaflegt letur Stækka letur Senda þessa síðu Prenta þessa síðu Veftré Hamur fyrir sjónskerta

Mynd