19.8.2008
Námskeið haustsins - skráning hafin
Námskeið haustsins eru nú komin á vefinn. Námsvísir kemur út 3. september. Rétt er þó að skrá sig strax hafi menn áhuga á tilteknum námskeiðum. Reynslan sýnir að mörg námskeið fyllast fljótt. Vegna flutninga í Skúlatún 2, kunna að vera smávægilegar snurður á vefskráningu. Bent er á símanúmer okkar 5906400 á meðan lagfæringar standa yfir.
19.8.2008
Prenttæknisvið gerir samning við Oxuniprint
Prenttæknisvið hefur náð samkomulagi við Oxuniprint um nemaskipti. Samkomulagið felur í sér að tveir nemar frá Íslandi dvelja hluta af námstíma sínum í Oxuniprint í Oxford á Englandi. Sömuleiðis að tveir nemar koma frá Oxuniprint til Íslands og dvelja í íslenskum prentsmiðjum. Samningurinn er fjármagnaður af Leonardo áætluninni um nemendaskipti. Nemarnir geta komið úr öllum geirum upplýsinga- og fjölmiðlagreina. Áhugasamir geta sett sig í samband við prenttæknisvið.
Leit
Mynd











