Beint á leiðarkerfi vefsins

19.4.2008

Jóhann Geir og Arnar Már sigruðu!

Keppendur uppl og fjölmÞeir Jóhann Geir Úlfarsson, nemi í grafískri miðlun á Expo og Arnar Már H. Guðmundsson, nemi í ljósmyndun við Iðnskólann í Reykjavík fóru með sigur af hólmi á Íslandsmóti iðngreina sem lauk í Laugardalshöll í dag. Dómnefnd sem skipuð var þeim Kalman le Sage de Fontenay, Hirti Guðnasyni og Birni M. Sigurjónssyni valdi milli fjögurra verkefna. Dómarastörfin voru óvenju snúin þar sem úrlausnir keppenda voru mjög jafnar að gæðum. Greinilegt er að þarna eru einbeittir og hæfileikaríkir nemendur á ferð. Allir keppendur fengu glaðning frá prenttæknisviði að lokinni drengilegri og spennandi keppni.

Á myndinni eru frá vinstri: Jóhann Geir Úlfarsson (sigurvegari í grafískri miðlun), Ólafur Tómas Guðbjartsson nemi í grafískri miðlun, Tinna Ósk Grímarsdóttir nemi í grafískri miðlun, Ólöf Dómhildur Jóhannsdóttir nemi í ljósmyndun, Arnar Már H. Guðmundsson (sigurvegari í ljósmyndun), Viktor Örn Guðlaugsson nemi í ljósmyndun, Silja Rut Thorlacius nemi í ljósmyndun og Tinna Ásgeirsdóttir nemi í grafískri miðlun.  

19.4.2008

Taugarnar þandar

Það var allt á suðupunkti á Íslandsmóti iðngreina um hádegið í dag, þegar keppendur í upplýsinga- og fjölmiðlagreinum voru að ljúka keppni. Þær Tinna Ósk Grímarsdóttir og Silja Rut Thorlacius voru að minnsta kosti spenntar að sjá þegar Jón Sandholt aðstoðaði þær við að skila verkefninu. Nú er spennandi að sjá hver fer með sigur af hólmi. Úrslit verða kynnt kl. 16.30 í dag laugardag.

18.4.2008

Spennandi keppni í grafískri miðlun og ljósmyndun!

Einbeitingin skein af keppendum í grafískri miðlun og ljósmyndun á Íslandsmóti iðngreina í dag.  Átta keppendur sem dregnir voru saman í fjögur tveggja manna lið fengu það verkefni að gera bækling og plakat fyrir Húsdýragarðinn. Það voru IKEA og Apple búðin sem lögðu til tölvur og húsbúnað ásamt Nýherja sem lagði til prentara.  Nú verður spennandi að sjá hverjum tekst að leysa verkefnið best af hendi. Það kemur í ljós á morgun klukkan 16.30 þegar verðlaun verða afhent sigurvegara í hverri grein. 

18.4.2008

Íslandsmót iðngreina sett í dag!

Iðnaðarráðherra, Össur Skarphéðinsson, setti  Íslandsmót iðngreina kl. 11.00 í dag, 18. apríl í anddyri Laugardalshallarinnar á annarri hæð. Íslandsmótið er nú árviss viðburður þar sem iðnnemar þreyta keppni í sínum faggreinum. Alls keppa um 80 nemar úr 20 greinum. Mótið stendur yfir 18. og 19. apríl. Verðlaunaafhending verður kl. 16.30 19. apríl. Dagskrá mótsins er hér.

Aðgangur er ókeypis og eru allir hvattir til að fylgjast með spennandi og skemmtilegri keppni.

17.4.2008

Verk og vit 2008

IÐAN fræðslusetur kynnir starfsemi sína á sýningunni Verk og vit 2008 sem tileinkuð er byggingariðnaði, skipulagsmálum og mannvirkjagerð. Þeir sem leggja leið sína til okkar á svæði C12 geta tekið þátt í skemmtilegu netfangahappdrætti. Gestir skilja eftir netföngin sín og þegar sýningunni lýkur verða fimm netföng dregin út. Hinir heppnu fá gjafabréf að upphæð 50.000 krónur. Gjafabréfið gildir sem greiðsla upp í einhver hinna fjölmörgu námskeiða á vegum IÐUNNAR fræðsluseturs.

14.4.2008

Íslandsmót iðngreina 2008

Íslandsmót Íslandsmót iðngreina verður haldið 18. og 19. apríl nk. Keppnin fer fram í Laugardalshöll og hefst 18. apríl kl. 09.00.  Um 80 þátttakendur keppa í 11 greinum. Prenttæknisvið gengst fyrir keppni í grafískri miðlun og ljósmyndun líkt og í fyrra. Að þessu sinni þreyta 8 keppendur í fjórum liðum keppni í gerð efnis fyrir prent og skjá. Keppnisstjóri er Hjörtur Guðnason og honum til fulltingis eru Jón Sandholt og Kalman Le Sage de Fontenay. IKEA og Apple búðin hafa góðfúslega samþykkt að styðja við keppnina með því að leggja til tölvur og skrifstofubúnað. Verðlaunaafhending verður kl. 16.30 þann 19. apríl.

14.4.2008

Leon Baird kenndi Flash og InDesign

Leon kennirÁgætis mæting var á námskeið með Leon Baird í síðustu viku. 16 nemendur lærðu grunnatriði InDesign og Flash forritanna í CS3 svítunni í Adobe. Leon lét vel af nemendum og taldi þá standa vel miðað við nemendur í Bretlandi. Fleiri námskeið í Flash eru fyrirhuguð næsta haust. Einnig er verið að skoða fleiri möguleika á kennslu í hljóð og myndvinnslu.

10.4.2008

Fræðslufundur - Sveinsprófsnefndir

Haldinn verður fræðslufundur um gerð prófa og námsmat fimmtudaginn 8. maí kl. 15.00-17.30 að Hallveigarstíg 1, 101 Reykjavík. Aðgangur er ókeypis en hvetjum fólk til að skrá sig. Hlökkum til að sjá sem flesta.

Skráning fer fram til og með mánudeginum 5. maí  í síma 590 6400. Nánari upplýsingar veitir Helen Williamsdóttir Gray í síma 594 4023. Einnig má senda tölvupóst á hwg@idan.is (sjá auglýsingu)

 

3.4.2008

Drupastyrkir afgreiddir

Styrkir vegna ferða á DRUPA prentsýninguna voru afgreiddir 3. apríl á fundi prenttæknisjóðs. Alls bárust 25 umsóknir og voru allar gildar utan ein. Dregið var úr gildum umsóknum og voru 15 styrkþegar samþykktir.  Sjóðsstjórn sendir hinum heppnu bréf fyrir helgi. Fær hver þeirra 60 þúsund krónur til að standa straum af ferðakostnaði á DRUPA í Dusseldorf.  Athygli vakti að engar konur sóttu um styrkinn. 


Slóðin mín:

Forsíða

Heim

Forsíða IÐUNNARIDAN.IS

Stjórnborð

Minnka letur Upphaflegt letur Stækka letur Senda þessa síðu Prenta þessa síðu Veftré Hamur fyrir sjónskerta

Mynd