31.3.2008
Hádegisfyrirlestur um lánsfjárþurrð á mörkuðum
Hádegisfyrirlestur um lánsfjárþurrð á mörkuðum verður haldinn í Bláa Sal Háskólans í Reykjavík (gamla Morgunblaðshúsið) þriðjudaginn 8. apríl kl. 12.15. Fyrirlesarar eru Bjarni Már Gylfason hagfræðingur SI, Jón Hreinsson fjármálastjóri Nýsköpunarmiðstöðvar Íslands og Helgi Björn Kristinsson forstöðumaður ráðgjafar Glitnis. Aðgangur er ókeypis og öllum heimill meðan húsrúm leyfir en gestir eru beðnir að skrá sig hér.
27.3.2008
Dagsetningar sveinsprófa í upplýsinga- og fjölmiðlagreinum
Sveinspróf verða haldin í grafískri miðlun, prentun og bókbandi frá 19. - 23. maí nk. Þeir sem hyggjast taka sveinspróf eru beðnir að skrá sig fyrir 1. apríl hjá IÐUNNI fræðslusetri. Skráningareyðublöð sveinsprófs má nálgast á www.idan.is undir liðnum námssamningar og sveinspróf. Sveinsprófsgjald er kr. 5000 sem verður innheimt að prófinu loknu. Sveinsbréf verða afhent föstudaginn 13. júní.
11.3.2008
Margmiðlunardiskar til láns!
Nokkrir margmiðlunardiskar fást lánaðir á Prenttæknisviði. Diskarnir eru lánaðir til eins mánaðar í senn.
Þessir diskar eru til láns:
Mastering color with Ben Willmore
Mastering Camera Raw with Ben Willmore
Advanced Masking in Photoshop with Ben Willmore
InDesign CS3 with David Blatner
Diskarnir eru lánaðir aðildarfélögum þeim að kostnaðarlausu gegn 5000 kr. tryggingu.
Leit
Mynd











