18.12.2008
Chris Aires kennir podcasting í mars
Chris Aires, breskur sérfræðingur í podcasting mun halda eins dags námskeið í Podcasting 9. mars. Podcasting eða hlaðvarp er nú að ryðja sér til rúms við útvarpssendingar á vefnum. Námskeiðið hentar mjög vel þeim sem vilja auka færni sína við vefmiðlun og hafa nokkra þekkingu á umsýslu vefmiðla. Námskeiðið tekur einn dag og er hluti af syrpu styttri námskeiða í mars. Í vikunni á undan verður Nigel French með framhald í InDesign CS4 og strax í vikunni þar á eftir verður Karsten Vestergaard með námskeið í Flash.
18.12.2008
Rannsókn á afdrifum nemenda og umfangi náms í upplýsinga- og fjölmiðlagreinum
Prenttæknisvið IÐUNNAR fræðsluseturs og Rannóknir og greining Háskólans í Reykjavík hafa gert með samning um að kanna umfang náms í upplýsinga- og fjölmiðlagreinum. Auk þess verða afdrif nemenda í þessum greinum könnuð. Líklegt er að niðurstöður liggi fyrir snemma vors 2009. Hugmyndin er upphaflega orðin til innan Starfsgreinaráðs upplýsinga- og fjölmiðlagreina en fjármagn til rannsóknarinnar fékkst úr Starfsmenntasjóði. Rannsóknin og niðurstöður hennar munu nýtast við endurskoðun námskrár í upplýsinga- og fjölmiðlagreinum á næstu misserum. Prenttæknisvið ásamt Rannóknum og greiningu HR munu gangast fyrir opnum fundi um niðurstöðurnar þegar þær liggja fyrir í vor.
16.12.2008
Námskeið prenttæknisviðs á vorönn 2009 - skráning hafin
Skráning er nú hafin á námskeið prenttæknisviðs á vorönn 2009. Alls eru 17 námskeið í boði á þessarri vorönn sem er talsverð aukning námskeiða frá því sem verið hefur. Þessi aukning helgast ekki síst af þeirri þörf sem skapast þegar atvinnuleysi knýr dyra. Sérstaklega er bent á námskeið í vefmiðlun sem haldið er af Tækniskólanum, námskeið í málmiðnaði, málmsuðu og vélfræði auk námskeiða fyrir hönnuði. Einfaldast er að skrá sig með því að smella á hnappinn hér til hægri eða hringja í síma 5906400.
3.12.2008
Kristín Ragna og Halldór Baldursson kenna á námskeiðum prenttæknisviðs
Kristín Ragna Gunnarsdóttir og Halldór Baldursson munu kenna á námskeiðum prenttæknisviðs á vorönn 2009. Kristín Ragna kennir námskeiðið ,,Frásagnarteikning" en Halldór kennir námskeiðið ,,myndskreytingar". Námskeiðið með Kristínu hefst 12. janúar og verður kennt í húsnæði IÐUNNAR að Skúlatúni 2.
Kennt verður tvisvar í viku á mánudögum og miðvikudögum frá 9.00-12.00. Í febrúar tekur Halldór við og kennir áfram á mánudögum og miðvikudögum út febrúar. Námskeiðin eru ætluð fagfólki í hönnun og grafískri miðlun.
Hægt er að skrá sig hér og með því að hringja í 5906400.
Rétt er að benda á að atvinnulausir félagar FGT og FBM fá ókeypis á námskeið prenttæknisviðs.
Leit
Mynd











