Beint á leiðarkerfi vefsins

21.11.2008

Prenttæknisvið gerir samning við Tækniskólann um námskeið í vefmiðlun

Boðið verður upp á námskeið í vefmiðlun fyrir aðildarfélaga prenttæknisviðs. Námskeiðið er haldið af Margmiðlunarskólanum og hefst um miðjan janúar. Á námskeiðinu verða kenndar ítarlegar aðferðir við Flash, action scripting og html á 16 vikum. Þátttakendur ættu því að vera vel færir í vefmiðlun að námskeiðinu loknu. Námskeiðið er sérstaklega ætlað prentsmiðum, grafískum miðlurum, hönnuðum og öðru fagfólki í upplýsinga- og fjölmiðlagreinum. Námskeiðið skerðir ekki bótarétt atvinnulausra en bent er á sérstök skilyrði um tilkynningarskyldu og mætingar fyrir þá sem þiggja bætur Vinnumálastofnunar. Nánari upplýsingar veitir Björn M. Sigurjónsson sviðsstjóri prenttæknisviðs IÐUNNAR.

14.11.2008

Ánægja með svartlistarnámskeið

Nemandi á svartlistSvartlistarnámskeið sem haldið var í samvinnu prenttæknisviðs og Listaháskólans lauk á miðvikudag. Ánægja var með námskeiðið og höfðu nemendur á orði að þetta hefði komið þeim skemmtilega á óvart. Líklegt má telja að framhald verði á slíkum námskeiðum á vorönn.

Alls er stefna að 16 námskeiðum á prenttæknisviði á vorönn sem er 90% aukning frá fyrri misserum í framboði námskeiða.

14.11.2008

Auglýsing um sveinspróf

Auglýsing um sveinspróf var birt í Morgunblaðinu og Fréttablaðinu sunnudaginn 26. október.

14.11.2008

Opinn fundur um stöðu námssamninga í löggiltum iðngreinum

Fundur um stöðu iðnnemaFjölmennur fundur um stöðu námssamninga í löggiltum iðngreinum var haldinn í húsnæði IÐUNNAR fræðsluseturs föstudaginn 14. nóvember.
Óvissan í efnahagsmálum þjóðarinnar kemur niður á námsmönnum í samningsbundnu iðnnámi eins og öðrum.
Rætt var um möguleg úrræði sem hægt væri að grípa til og ítrekaður réttur nema samkvæmt Reglugerð um námssamninga og starfsþjálfun, nr. 280/1997. Með reglugerð um breytingu nr, 423/2000.
Ákveðið var að vinna áfram að því að leita lausna.

 

5.11.2008

Úrræði væntanleg

Sérstakar ráðstafanir vegna bágs atvinnuástands verða kynntar í næstu viku. Prenttæknisvið hefur safnað upplýsingum um þau úrræði sem bjóðast í menntun og styrkja möguleikum aðildarfélaga pts. Væntanlegt er að upplýsingunum verði dreift á félagsmenn í FBM um leið og þær eru tilbúnar.

5.11.2008

InDesign og Illustrator á vorönn

Framhaldsnámskeið í InDesign, Illustrator og Photoshop á vorönn
Vegna tíðra fyrirspurna verður látið uppi að framhaldsnámskeið fyrir lengra komna notendur í InDesign, Illustrator og Photoshop verða haldin á vorönn. Íslandsvinurinn og Photoshop-gúrúinn Ben Willmore er væntanlegur auk Nigel French sem er orðinn okkur vel kunnugur.

5.11.2008

Svartlistarnámskeið hófst í gær

SvartlistSvartlistarnámskeið hófst í gærkvöldi með 10 þátttakendum úr prentiðnaði. Jóhann Ludwig Torfason kennari við Listaháskóla Íslands leiðbeinir á námskeiðinu. Námskeiðið hefur vakið nokkra forvitni enda nýstárlegt og spennandi. Námskeiðið spannar fjögur kvöld og nemendur vinna verkefni undir handleiðslu Jóhanns.
Þegar tíðindamaður pts.is leit við í gærkvöldi voru þátttakendur að gera sig klára fyrir verkefni.



Slóðin mín:

Forsíða

Heim

Forsíða IÐUNNARIDAN.IS

Stjórnborð

Minnka letur Upphaflegt letur Stækka letur Senda þessa síðu Prenta þessa síðu Veftré Hamur fyrir sjónskerta

Mynd