29.10.2008
IÐAN fræðslusetur og Starfsafl fræðslusjóður í samstarf
Undirritaður hefur verið samningur á milli IÐUNNAR fræðsluseturs og Starfsafls, starfsmenntar Samtaka atvinnulífsins og Flóabandalagsins. Samningurinn gerir iðnfyrirtækjum kleift að senda alla starfsmenn, jafnt iðnaðarmenn sem almenna starfsmenn Flóabandalagsins á námskeið IÐUNNAR og greiða fyrir það lágmarksgjald samkvæmt gjaldskrá IÐUNNAR. Starfsafl greiðir mismun félagsgjalds og almenns námskeiðsgjalds fyrir félagsmenn Flóabandalagsins (Eflinga, Hlífar og VSFK).
10.10.2008
Margir njóta styrkja prenttæknisjóðs
Margir aðildarfélagar prenttæknsisviðs hafa nýtt sér námsstyrki prenttæknisjóðs á þessu ári. Alls hafa um 106 einstaklingar fengið styrki til lengra eða styttra náms í háskólum, Tækniskólanum og öðrum menntastofnunum. Styrkirnir nema allt að 100.000 krónum eða 70% af námskeiðsgjöldum fyrir starfstengt nám. Þá má nefna að landsbyggðarfélagar geta sótt um ferðastyrk til að sækja námskeið.Dæmi um nám sem sjóðurinn styrkir er t.d. markaðsfræði, upplýsingatækni, tölvufræði og viðskiptanám.
Eyðublöð fyrir umsóknir styrkja eru hér. Aðildarfélagar eru hvattir til að nýta sér alla möguleika til að styrkja sig á vinnumarkaði.
10.10.2008
Ýmsar leiðir færar
Aðildarfélögum prenttæknisviðs IÐUNNAR standa nokkrar leiðir til boða. Rétt er að minna á nokkrar þeirra.
Náms- og starfsráðgjöf er fyrir þá sem vilja skoða stöðu sína á vinnumarkaði í ljósi breyttra aðstæðna. Ráðgjöfin felst í stöðumati og bent er á færar leiðir til að mennta sig að nýju eða bæta við sig námi. Markmiðið er að styrkja einstaklinginn á vinnumarkaði. Ekki er um vinnumiðlun að ræða heldur stuðning og eftirfylgni.
Ráðgjöfin er öllum opin og félögum í FBM að kostnaðarlausu. Hægt er að panta tíma með því að senda póst á netfangið edda@idan.is eða með því að hringja í síma 5906400.
Aðildarfélagar með réttindi hjá FBM geta sótt um styrki til að sækja námskeið eða styrk fyrir skólagjöldum í lengra nám. Styrkirnir nema allt að 75% af námskeiðsgjöldum. Umsóknareyðublöð og nánari upplýsingar eru á www.fbm.is. Rétt er að benda á að atvinnulausir félagar í FBM fá öll námskeið sér að kostnaðarlausu.
Fyrirtækjastyrkir eru í boði til þeirra fyrirtækja sem hyggjast bjóða upp á námskeið innan sinna veggja. Styrkirnir nema allt að 50% af kostnaði og geta hæstir verið um 500.000. Fyrirspurnum skal beint til sviðsstjóra á netfangið bjorn@idan.is
3.10.2008
Bjóða kreppunni byrginn í Guðjónó
Leit
Mynd











