29.1.2008
Stemning á vélfræði fyrir bókbindara!
Það var stemning á námskeiðinu ,,Vélfræði fyrir bókbindara" sem stendur yfir um þessar mundir. 15 bókbindarar læra um vélfræði og stýrt viðhald bókbandslína. Hluti af námskeiðinu fjallar um málma og málmþreytu. Það var þó ekki að sjá neina þreytu á þessum tveimur nemendum sem tóku í suðutækin í gær.
23.1.2008
Grafísk miðlun komin út!
Grafísk miðlun, handbók um prentiðnað og prentvinnslu kom út í dag 23. janúar á menntadegi Iðnaðarins. Erling Erlingsson framkvæmdastjóri Iðnú kynnti bókina við það tækifæri. OPM prentaði og batt bókina sem er hin glæsilegasta. Prenttæknisvið IÐUNNAR hefur haft hönd í bagga með útgáfunni og greitt götu hennar frá árinu 2005. Grafísk miðlun fæst í bókabúð Iðnú Brautarholti 8.
17.1.2008
Grunnnámskeið í Illustrator hefst 29. janúar
Grunnnámskeið í Illustrator hefst 29. janúar. Illustrator er nú að verða aðalteikniforrit atvinnumanna í hönnun og auglýsingagerð. Í CS3 hafa möguleikar forritsins vaxið töluvert frá CS2 og segja má að Illustrator sé grunnur að margvíslegri myndgerð fyrir hreyfiskilti, vef- og prentmiðla.
Á þessu námskeið kennir Höskuldur Harri Gylfason grunnatriðin við Illustrator. Kenndar eru algengustu skipanir og aðgerðir til að vinna með myndir, skreytingar, línur og texta. Farið er í stílsnið og nemendur leysa hagnýt verkefni undir leiðsögn kennara. Með námskeiðinu fylgir kennslubókin ,,Real World Illustrator CS3, industrial strength production techniques". Mælt er með námskeiðinu fyrir alla sem hafa hug á að ná tökum á nýmiðlun á skjá og prent. ´
Námskeiðið verður haldið 29. janúar, 30. janúar, 5. febrúar og 6. febrúar frá kl. 18.00-22.00 í tölvuhúsi Iðnskólans í Reykjavík. Skráning á www.idan.is og www.pts.is eða í síma 5906400.
11.1.2008
Fullt á vélfræði fyrir bókbindara
Námskeiðið vélfræði fyrir bókbindara fylltist í gær og því verður ekki tekið við fleiri skráningum í bili. Þeir sem hefðu viljað sækja námskeiðið geta skráð sig á biðlista og verður nýtt námskeið sett upp um leið og fært er.
Námskeiðið hefst á mánudaginn kl. 15 að Gylfaflöt 19. Þátttakendur eru beðnir að mæta tímanlega.
9.1.2008
Afmæli Xplor Ísland samtakanna
2.1.2008
Spennandi námskeið á vorönn 2008
Fjöldi spennandi námskeiða eru í boði á prenttæknisviði á vorönn 2008. Auk hefðbundinna námskeiða í InDesign og Illustrator verða boðin námskeið í hönnun fyrir farsíma með Mordy Golding. Hann mun einnig halda námskeið í hönnun fyrir mismunandi miðla innan Adobe svítunnar. Þá verða haldin námskeið í litstýringum og prófílum fyrir skjá og prentun auk námskeiðs í lökkun prentgripa. Önninni lýkur í maí með spennandi námskeiði Jespers Clements í umbúðahönnun.
Menn eru hvattir til að skrá sig strax því eingöngu er hægt að taka við takmörkuðum fjölda á hvert námskeið.
Skráning á námskeið prenttæknisviðs er í síma 5906400 og á www.idan.is eða með því að smella á borðann hér til hægri.
Leit
Mynd











