18.12.2008
Chris Aires kennir podcasting í mars
18.12.2008
Rannsókn á afdrifum nemenda og umfangi náms í upplýsinga- og fjölmiðlagreinum
16.12.2008
Námskeið prenttæknisviðs á vorönn 2009 - skráning hafin
3.12.2008
Kristín Ragna og Halldór Baldursson kenna á námskeiðum prenttæknisviðs
Kristín Ragna Gunnarsdóttir og Halldór Baldursson munu kenna á námskeiðum prenttæknisviðs á vorönn 2009. Kristín Ragna kennir námskeiðið ,,Frásagnarteikning" en Halldór kennir námskeiðið ,,myndskreytingar". Námskeiðið með Kristínu hefst 12. janúar og verður kennt í húsnæði IÐUNNAR að Skúlatúni 2.
Kennt verður tvisvar í viku á mánudögum og miðvikudögum frá 9.00-12.00. Í febrúar tekur Halldór við og kennir áfram á mánudögum og miðvikudögum út febrúar. Námskeiðin eru ætluð fagfólki í hönnun og grafískri miðlun.
Hægt er að skrá sig hér og með því að hringja í 5906400.
Rétt er að benda á að atvinnulausir félagar FGT og FBM fá ókeypis á námskeið prenttæknisviðs.
21.11.2008
Prenttæknisvið gerir samning við Tækniskólann um námskeið í vefmiðlun
14.11.2008
Ánægja með svartlistarnámskeið
Svartlistarnámskeið sem haldið var í samvinnu prenttæknisviðs og Listaháskólans lauk á miðvikudag. Ánægja var með námskeiðið og höfðu nemendur á orði að þetta hefði komið þeim skemmtilega á óvart. Líklegt má telja að framhald verði á slíkum námskeiðum á vorönn.
Alls er stefna að 16 námskeiðum á prenttæknisviði á vorönn sem er 90% aukning frá fyrri misserum í framboði námskeiða.
14.11.2008
Auglýsing um sveinspróf
14.11.2008
Opinn fundur um stöðu námssamninga í löggiltum iðngreinum
Fjölmennur fundur um stöðu námssamninga í löggiltum iðngreinum var haldinn í húsnæði IÐUNNAR fræðsluseturs föstudaginn 14. nóvember.
Óvissan í efnahagsmálum þjóðarinnar kemur niður á námsmönnum í samningsbundnu iðnnámi eins og öðrum.
Rætt var um möguleg úrræði sem hægt væri að grípa til og ítrekaður réttur nema samkvæmt Reglugerð um námssamninga og starfsþjálfun, nr. 280/1997. Með reglugerð um breytingu nr, 423/2000.
Ákveðið var að vinna áfram að því að leita lausna.
5.11.2008
Úrræði væntanleg
Sérstakar ráðstafanir vegna bágs atvinnuástands verða kynntar í næstu viku. Prenttæknisvið hefur safnað upplýsingum um þau úrræði sem bjóðast í menntun og styrkja möguleikum aðildarfélaga pts. Væntanlegt er að upplýsingunum verði dreift á félagsmenn í FBM um leið og þær eru tilbúnar.
5.11.2008
InDesign og Illustrator á vorönn
Framhaldsnámskeið í InDesign, Illustrator og Photoshop á vorönn
Vegna tíðra fyrirspurna verður látið uppi að framhaldsnámskeið fyrir lengra komna notendur í InDesign, Illustrator og Photoshop verða haldin á vorönn. Íslandsvinurinn og Photoshop-gúrúinn Ben Willmore er væntanlegur auk Nigel French sem er orðinn okkur vel kunnugur.
5.11.2008
Svartlistarnámskeið hófst í gær
Svartlistarnámskeið hófst í gærkvöldi með 10 þátttakendum úr prentiðnaði. Jóhann Ludwig Torfason kennari við Listaháskóla Íslands leiðbeinir á námskeiðinu. Námskeiðið hefur vakið nokkra forvitni enda nýstárlegt og spennandi. Námskeiðið spannar fjögur kvöld og nemendur vinna verkefni undir handleiðslu Jóhanns.
Þegar tíðindamaður pts.is leit við í gærkvöldi voru þátttakendur að gera sig klára fyrir verkefni.
29.10.2008
IÐAN fræðslusetur og Starfsafl fræðslusjóður í samstarf
Undirritaður hefur verið samningur á milli IÐUNNAR fræðsluseturs og Starfsafls, starfsmenntar Samtaka atvinnulífsins og Flóabandalagsins. Samningurinn gerir iðnfyrirtækjum kleift að senda alla starfsmenn, jafnt iðnaðarmenn sem almenna starfsmenn Flóabandalagsins á námskeið IÐUNNAR og greiða fyrir það lágmarksgjald samkvæmt gjaldskrá IÐUNNAR. Starfsafl greiðir mismun félagsgjalds og almenns námskeiðsgjalds fyrir félagsmenn Flóabandalagsins (Eflinga, Hlífar og VSFK).
10.10.2008
Margir njóta styrkja prenttæknisjóðs
Margir aðildarfélagar prenttæknsisviðs hafa nýtt sér námsstyrki prenttæknisjóðs á þessu ári. Alls hafa um 106 einstaklingar fengið styrki til lengra eða styttra náms í háskólum, Tækniskólanum og öðrum menntastofnunum. Styrkirnir nema allt að 100.000 krónum eða 70% af námskeiðsgjöldum fyrir starfstengt nám. Þá má nefna að landsbyggðarfélagar geta sótt um ferðastyrk til að sækja námskeið.Dæmi um nám sem sjóðurinn styrkir er t.d. markaðsfræði, upplýsingatækni, tölvufræði og viðskiptanám.
Eyðublöð fyrir umsóknir styrkja eru hér. Aðildarfélagar eru hvattir til að nýta sér alla möguleika til að styrkja sig á vinnumarkaði.
10.10.2008
Ýmsar leiðir færar
Aðildarfélögum prenttæknisviðs IÐUNNAR standa nokkrar leiðir til boða. Rétt er að minna á nokkrar þeirra.
Náms- og starfsráðgjöf er fyrir þá sem vilja skoða stöðu sína á vinnumarkaði í ljósi breyttra aðstæðna. Ráðgjöfin felst í stöðumati og bent er á færar leiðir til að mennta sig að nýju eða bæta við sig námi. Markmiðið er að styrkja einstaklinginn á vinnumarkaði. Ekki er um vinnumiðlun að ræða heldur stuðning og eftirfylgni.
Ráðgjöfin er öllum opin og félögum í FBM að kostnaðarlausu. Hægt er að panta tíma með því að senda póst á netfangið edda@idan.is eða með því að hringja í síma 5906400.
Aðildarfélagar með réttindi hjá FBM geta sótt um styrki til að sækja námskeið eða styrk fyrir skólagjöldum í lengra nám. Styrkirnir nema allt að 75% af námskeiðsgjöldum. Umsóknareyðublöð og nánari upplýsingar eru á www.fbm.is. Rétt er að benda á að atvinnulausir félagar í FBM fá öll námskeið sér að kostnaðarlausu.
Fyrirtækjastyrkir eru í boði til þeirra fyrirtækja sem hyggjast bjóða upp á námskeið innan sinna veggja. Styrkirnir nema allt að 50% af kostnaði og geta hæstir verið um 500.000. Fyrirspurnum skal beint til sviðsstjóra á netfangið bjorn@idan.is
3.10.2008
Bjóða kreppunni byrginn í Guðjónó
24.9.2008
EUROSKILLS Rotterdam
. Um leið sátu þau málþing og fund EGIN samtakanna. Keppnin í upplýsinga- og fjölmiðlagreinum var athyglisverð fyrir margra hluta sakir. Keppt var í þriggjamanna liðum, grafísks miðlara, vefmiðlara og prentara. Keppnisverkefnið var að búa til vefgrafík, plaköt, bæklinga og dreifpóst fyrir skífuþeytarann Jean sem er þekktur skemmtikraftur í Hollandi.Íslenska sendinefndin safnaði nokkrum upplýsingum um keppnisreglur og fyrirkomulag keppninnar ytra sem verður nýtt við næstu iðnnemakeppni á Íslandi.
24.9.2008
Fjögur sæti laus á Lightroom með Nigel French
Góð þátttaka er á námskeið með Nigel French í Lightroom sem haldið verður 6. október n.k. Nú eru aðeins 4 sæti laus og fyrstur kemur fyrstur fær. Nigel French er okkur að góðu kunnur en hann var með framhaldsnámskeið í InDesign í fyrra við góðan orðstí. Nigel er lipur kennari með mikla reynslu af grafískri hönnun, ljósmyndun og auglýsingagerð.Hann rak eigin stofu í San Francisco þar til fyrir nokkrum árum að hann söðlaði um og flutti til heimaborgar sinnar London.
Nigel verður einnig hér á landi 7. október. Þá er möguleiki að hann fari í fyrirtæki með s.k. ,,troubleshoot". Þá gengur leiðbeinandi á milli og starfsmenn umbrotsdeilda geta spurt um ákveðin vandamál sem þeir hafa eða hann bendir á hraðvirkari leiðir við vinnslu. Þeir sem hafa áhuga á því hafi samband við Björn M. Sigurjónsson sviðsstjóra prenttæknisviðs á bjorn@idan.is
24.9.2008
EUROSKILLS Rotterdam
Evrópska iðnnemakeppnin var haldin 18.-20. október s.l. Þriggja manna hópur af prenttæknisviði fór utan til að kynna sér sýninguna, þau Georg Páll Skúlason, Hanna Þórunn Skúladóttir og Björn M. Sigurjónsson. Um leið sátu þau málþing og fund EGIN samtakanna. Keppnin í upplýsinga- og fjölmiðlagreinum var athyglisverð fyrir margra hluta sakir. Keppt var í þriggjamanna liðum, grafísks miðlara, vefmiðlara og prentara. Keppnisverkefnið var að búa til vefgrafík, plaköt, bæklinga og dreifpóst fyrir skífuþeytarann Jean sem er þekktur skemmtikraftur í Hollandi.Íslenska sendinefndin safnaði nokkrum upplýsingum um keppnisreglur og fyrirkomulag keppninnar ytra sem verður nýtt við næstu iðnnemakeppni á Íslandi.
4.9.2008
Nýr námsvísir kemur út í dag!
Námsvísir IÐUNNAR kemur út í dag. Að vanda býður IÐAN upp á fjölbreytt námskeið fyrir aðildarfélaga. Meðal nýjunga má nefna námskeið í stjórnun og rekstri. T.d. má nefna námskeið um skuldastýringu og gengisvarnir, birgðastjórnun í iðnaði, framleiðslustjórnun iðnfyrirtækja, gæðastjórnun og móttöku viðskiptavina.
Fyrstu stjórnunar- og rekstrarnámskeið hefjast 15. september en þá hefst námskeið í framleiðslustjórnun í iðnaði.
19.8.2008
Námskeið haustsins - skráning hafin
19.8.2008
Prenttæknisvið gerir samning við Oxuniprint
1.6.2008
Afhending sveinsbréfa í upplýsinga- og fjölmiðlagreinum
Afhending sveinsbréfa í upplýsinga- og fjölmiðlagreinum fer fram að Hverfisgötu 21 þann 13. júní nk. kl. 18.00. Að þessu sinni verða afhent 11 sveinsbréf til nýsveina, 8 í grafískri miðlun og 3 í prentun. Sveinspróf í ljósmyndun fara fram í lok september. Frestur til að skrá sig í sveinspróf í ljósmyndun rann út 1. júní.
20.5.2008
Prentvélar óskast...
Heidelberg
CD 102-5LX
SM 52-5+L
MAN Roland
204 HOB
702+L or similar
HORIZON
VAC 100a, VAC 100m, HMU 100, ST 40, SPF 200A, SC 200, BQ 270
+ modul for front cut FC20
Thank you for co-operation.
Tatjana Fengler
Sales Management Kind regards from Cologne
E-Mail Tel Fax ICQ# Skype
trade@eurochannel.de +49 221 92432-16 +49 221 92432-2 286543286 wis-fengler
11.5.2008
Aðalfundur IÐUNNAR fræðslusetur
Aðalfundur var haldinn þriðjudaginn 29. apríl sl. á Grand Hótel. Í stjórn IÐUNNAR fræðsluseturs árið 2008 eru:
| Aðalmenn: | Varamenn: |
| Bjarni Thoroddsen SI | Atli Vilhjálmsson BGS |
| Finnbjörn Hermannsson Samiðn | Erna Hauksdóttir SAF |
| Georg Páll Skúlason FBM | Heimir Kristinsson Samiðn |
| Guðmundir I. Skúlason BGS | Haraldur Dean Nelson SI |
| Hilmar Harðarson FIT | Hákon Hákonarson Samiðn |
| Magnús Magnússon VM | Ingi Bogi Bogason SI |
| Níels Olgeirsson MATVÍS | Ingólfur Sverrisson SI |
| Ragnheiður Héðinsdóttir SI | Stefán Ólafsson FBM |
| Jón Steindór Valdimarsson SI | Sveinn Ingason FIT |
| Þorsteinn Víglundsson SI | Þorsteinn Gunnarsson MATVÍS |
8.5.2008
Sveinspróf í grafískri miðlun og prentun vorið 2008
19.4.2008
Jóhann Geir og Arnar Már sigruðu!
Þeir Jóhann Geir Úlfarsson, nemi í grafískri miðlun á Expo og Arnar Már H. Guðmundsson, nemi í ljósmyndun við Iðnskólann í Reykjavík fóru með sigur af hólmi á Íslandsmóti iðngreina sem lauk í Laugardalshöll í dag. Dómnefnd sem skipuð var þeim Kalman le Sage de Fontenay, Hirti Guðnasyni og Birni M. Sigurjónssyni valdi milli fjögurra verkefna. Dómarastörfin voru óvenju snúin þar sem úrlausnir keppenda voru mjög jafnar að gæðum. Greinilegt er að þarna eru einbeittir og hæfileikaríkir nemendur á ferð. Allir keppendur fengu glaðning frá prenttæknisviði að lokinni drengilegri og spennandi keppni.
Á myndinni eru frá vinstri: Jóhann Geir Úlfarsson (sigurvegari í grafískri miðlun), Ólafur Tómas Guðbjartsson nemi í grafískri miðlun, Tinna Ósk Grímarsdóttir nemi í grafískri miðlun, Ólöf Dómhildur Jóhannsdóttir nemi í ljósmyndun, Arnar Már H. Guðmundsson (sigurvegari í ljósmyndun), Viktor Örn Guðlaugsson nemi í ljósmyndun, Silja Rut Thorlacius nemi í ljósmyndun og Tinna Ásgeirsdóttir nemi í grafískri miðlun.
19.4.2008
Taugarnar þandar
Það var allt á suðupunkti á Íslandsmóti iðngreina um hádegið í dag, þegar keppendur í upplýsinga- og fjölmiðlagreinum voru að ljúka keppni. Þær Tinna Ósk Grímarsdóttir og Silja Rut Thorlacius voru að minnsta kosti spenntar að sjá þegar Jón Sandholt aðstoðaði þær við að skila verkefninu. Nú er spennandi að sjá hver fer með sigur af hólmi. Úrslit verða kynnt kl. 16.30 í dag laugardag.
18.4.2008
Spennandi keppni í grafískri miðlun og ljósmyndun!
Einbeitingin skein af keppendum í grafískri miðlun og ljósmyndun á Íslandsmóti iðngreina í dag. Átta keppendur sem dregnir voru saman í fjögur tveggja manna lið fengu það verkefni að gera bækling og plakat fyrir Húsdýragarðinn. Það voru IKEA og Apple búðin sem lögðu til tölvur og húsbúnað ásamt Nýherja sem lagði til prentara. Nú verður spennandi að sjá hverjum tekst að leysa verkefnið best af hendi. Það kemur í ljós á morgun klukkan 16.30 þegar verðlaun verða afhent sigurvegara í hverri grein.
18.4.2008
Íslandsmót iðngreina sett í dag!
Iðnaðarráðherra, Össur Skarphéðinsson, setti Íslandsmót iðngreina kl. 11.00 í dag, 18. apríl í anddyri Laugardalshallarinnar á annarri hæð. Íslandsmótið er nú árviss viðburður þar sem iðnnemar þreyta keppni í sínum faggreinum. Alls keppa um 80 nemar úr 20 greinum. Mótið stendur yfir 18. og 19. apríl. Verðlaunaafhending verður kl. 16.30 19. apríl. Dagskrá mótsins er hér.
Aðgangur er ókeypis og eru allir hvattir til að fylgjast með spennandi og skemmtilegri keppni.
17.4.2008
Verk og vit 2008
IÐAN fræðslusetur kynnir starfsemi sína á sýningunni Verk og vit 2008 sem tileinkuð er byggingariðnaði, skipulagsmálum og mannvirkjagerð. Þeir sem leggja leið sína til okkar á svæði C12 geta tekið þátt í skemmtilegu netfangahappdrætti. Gestir skilja eftir netföngin sín og þegar sýningunni lýkur verða fimm netföng dregin út. Hinir heppnu fá gjafabréf að upphæð 50.000 krónur. Gjafabréfið gildir sem greiðsla upp í einhver hinna fjölmörgu námskeiða á vegum IÐUNNAR fræðsluseturs.
14.4.2008
Íslandsmót iðngreina 2008
Íslandsmót iðngreina verður haldið 18. og 19. apríl nk. Keppnin fer fram í Laugardalshöll og hefst 18. apríl kl. 09.00. Um 80 þátttakendur keppa í 11 greinum. Prenttæknisvið gengst fyrir keppni í grafískri miðlun og ljósmyndun líkt og í fyrra. Að þessu sinni þreyta 8 keppendur í fjórum liðum keppni í gerð efnis fyrir prent og skjá. Keppnisstjóri er Hjörtur Guðnason og honum til fulltingis eru Jón Sandholt og Kalman Le Sage de Fontenay. IKEA og Apple búðin hafa góðfúslega samþykkt að styðja við keppnina með því að leggja til tölvur og skrifstofubúnað. Verðlaunaafhending verður kl. 16.30 þann 19. apríl.
14.4.2008
Leon Baird kenndi Flash og InDesign
Ágætis mæting var á námskeið með Leon Baird í síðustu viku. 16 nemendur lærðu grunnatriði InDesign og Flash forritanna í CS3 svítunni í Adobe. Leon lét vel af nemendum og taldi þá standa vel miðað við nemendur í Bretlandi. Fleiri námskeið í Flash eru fyrirhuguð næsta haust. Einnig er verið að skoða fleiri möguleika á kennslu í hljóð og myndvinnslu.
10.4.2008
Fræðslufundur - Sveinsprófsnefndir
Skráning fer fram til og með mánudeginum 5. maí í síma 590 6400. Nánari upplýsingar veitir Helen Williamsdóttir Gray í síma 594 4023. Einnig má senda tölvupóst á hwg@idan.is (sjá auglýsingu)
3.4.2008
Drupastyrkir afgreiddir
31.3.2008
Hádegisfyrirlestur um lánsfjárþurrð á mörkuðum
27.3.2008
Dagsetningar sveinsprófa í upplýsinga- og fjölmiðlagreinum
11.3.2008
Margmiðlunardiskar til láns!
Nokkrir margmiðlunardiskar fást lánaðir á Prenttæknisviði. Diskarnir eru lánaðir til eins mánaðar í senn.
Þessir diskar eru til láns:
Mastering color with Ben Willmore
Mastering Camera Raw with Ben Willmore
Advanced Masking in Photoshop with Ben Willmore
InDesign CS3 with David Blatner
Diskarnir eru lánaðir aðildarfélögum þeim að kostnaðarlausu gegn 5000 kr. tryggingu.
29.2.2008
Leon Baird kennir InDesign og Flash
20.2.2008
Hver sér vefinn þinn? Hádegisfyrirlestur 26. febrúar
Hver sér vefinn þinn? er yfirskrift hádegisfyrirlestrar sem Kristján Már Hauksson flytur þriðjudaginn 26. febrúar. Hann fjallar um nýjustu rannsóknir á því hvernig netnotendur skoða vefi og greinir frá aðferðum til að hámarka leitarniðurstöður leitarvéla. Fjölmörg fyrirtæki nýta sér ekki þá möguleika sem felast í internetinu. Með einföldum aðgerðum má auka notkun vefjanna og þannig ná betri útbreiðslu á veraldarvefnum.
20.2.2008
Bestu aðferðir rekstrar í fullum gangi
10 nemendur sitja námskeiðið bestu aðferðir rekstrar sem hófst 19. febrúar. Jón Hreinsson fjármálastjóri Nýsköpunarmiðstöðvar Íslands kennir nýjust aðferðir í rekstri, hámörkun afkasta, framlegð á vinnustöð, ferla, skipulag og innra verkbókhald svo nokkuð sé nefnt. Þá kennir Jón hvernig snúa má núllstöðu í hagnað. Námskeiðið er ætlað þeim sem hafa rekstur á sinni könnu eða hyggjast takast rekstur á hendur á næstunni. Nemendum gefst kostur á lengra námi innan símenntar HR í kjölfarið.
12.2.2008
Íslenskunámskeið fyrir erlenda starfsmenn í fullum gangi
11.2.2008
Litstýringar með Jóni Sandholt 12. febrúar
4.2.2008
Hermann og Katrín hlutu verðlaun Iðnaðarmannafélagsins
Hermann Geir Rúnarsson og Katrín Jónsdóttir hlutu verðlaun Iðnaðarmannafélagsins í Reykjavík fyrir framúrskarandi árangur á sveinsprófi, á hátíðardagskrá í Ráðhúsi Reykjavíkur laugardaginn 2. febrúar. Hermann Geir hlaut bronsverðlaun fyrir árangur á sveinsprófi í prentun og Katrín silfurverðlaun fyrir árangur á sveinsprófi í grafískri miðlun. Þá var Katrínu einnig veittur námsstyrkur við Háskólann í Reykjavík. Forseti Íslands hr. Ólafur Ragnar Grímsson afhenti verðlaunin en alls hlutu 9 nýsveinar og meistarar þeirra viðurkenningu.
(Mynd: Hermann Geir tekur við viðurkenningu úr hendi forseta Íslands).
29.1.2008
Stemning á vélfræði fyrir bókbindara!
Það var stemning á námskeiðinu ,,Vélfræði fyrir bókbindara" sem stendur yfir um þessar mundir. 15 bókbindarar læra um vélfræði og stýrt viðhald bókbandslína. Hluti af námskeiðinu fjallar um málma og málmþreytu. Það var þó ekki að sjá neina þreytu á þessum tveimur nemendum sem tóku í suðutækin í gær.
23.1.2008
Grafísk miðlun komin út!
Grafísk miðlun, handbók um prentiðnað og prentvinnslu kom út í dag 23. janúar á menntadegi Iðnaðarins. Erling Erlingsson framkvæmdastjóri Iðnú kynnti bókina við það tækifæri. OPM prentaði og batt bókina sem er hin glæsilegasta. Prenttæknisvið IÐUNNAR hefur haft hönd í bagga með útgáfunni og greitt götu hennar frá árinu 2005. Grafísk miðlun fæst í bókabúð Iðnú Brautarholti 8.
17.1.2008
Grunnnámskeið í Illustrator hefst 29. janúar
Grunnnámskeið í Illustrator hefst 29. janúar. Illustrator er nú að verða aðalteikniforrit atvinnumanna í hönnun og auglýsingagerð. Í CS3 hafa möguleikar forritsins vaxið töluvert frá CS2 og segja má að Illustrator sé grunnur að margvíslegri myndgerð fyrir hreyfiskilti, vef- og prentmiðla.
Á þessu námskeið kennir Höskuldur Harri Gylfason grunnatriðin við Illustrator. Kenndar eru algengustu skipanir og aðgerðir til að vinna með myndir, skreytingar, línur og texta. Farið er í stílsnið og nemendur leysa hagnýt verkefni undir leiðsögn kennara. Með námskeiðinu fylgir kennslubókin ,,Real World Illustrator CS3, industrial strength production techniques". Mælt er með námskeiðinu fyrir alla sem hafa hug á að ná tökum á nýmiðlun á skjá og prent. ´
Námskeiðið verður haldið 29. janúar, 30. janúar, 5. febrúar og 6. febrúar frá kl. 18.00-22.00 í tölvuhúsi Iðnskólans í Reykjavík. Skráning á www.idan.is og www.pts.is eða í síma 5906400.
11.1.2008
Fullt á vélfræði fyrir bókbindara
Námskeiðið vélfræði fyrir bókbindara fylltist í gær og því verður ekki tekið við fleiri skráningum í bili. Þeir sem hefðu viljað sækja námskeiðið geta skráð sig á biðlista og verður nýtt námskeið sett upp um leið og fært er.
Námskeiðið hefst á mánudaginn kl. 15 að Gylfaflöt 19. Þátttakendur eru beðnir að mæta tímanlega.
9.1.2008
Afmæli Xplor Ísland samtakanna
2.1.2008
Spennandi námskeið á vorönn 2008
Fjöldi spennandi námskeiða eru í boði á prenttæknisviði á vorönn 2008. Auk hefðbundinna námskeiða í InDesign og Illustrator verða boðin námskeið í hönnun fyrir farsíma með Mordy Golding. Hann mun einnig halda námskeið í hönnun fyrir mismunandi miðla innan Adobe svítunnar. Þá verða haldin námskeið í litstýringum og prófílum fyrir skjá og prentun auk námskeiðs í lökkun prentgripa. Önninni lýkur í maí með spennandi námskeiði Jespers Clements í umbúðahönnun.
Menn eru hvattir til að skrá sig strax því eingöngu er hægt að taka við takmörkuðum fjölda á hvert námskeið.
Skráning á námskeið prenttæknisviðs er í síma 5906400 og á www.idan.is eða með því að smella á borðann hér til hægri.
Leit
Mynd











