19.12.2007
,,Hélt þú værir að gabba mig"
,,Ég hélt þú værir að gabba mig" sagði Anna Helgadóttir í Gutenberg þegar sviðsstjóri prenttæknisviðs færði henni gjafakort að upphæð 7.500 kr. Anna tók þátt í þarfagreiningu prenttæknisviðs og lagði nafn og símanúmer í pottinn. Hún var svo ljónheppin að vinna gjafakort í Kringluna.
Fimm aðrir heppnir þátttakendur unnu gjafakort og fá tölvupóst í dag. Hinir heppnu geta nálgast gjafakortin á Hallveigarstíg 1 á skrifstofutíma.
Leit
Mynd











