Beint á leiðarkerfi vefsins

29.11.2007

Kennsluhefti í litstýringum komið út

Litstýring Út er komið kennsluheftið Litstýring eftir Jón A. Sandholt. Heftið er 58 blaðsíður og fjallar um litafræði, litrúm, ICC litstýringar, prófíla og vinnsluflæði í ICC, RGB og CMYK. Heftið er ætlað fagmönnum í forvinnslu, prenturum, ljósmyndurum, prentsmiðum, grafískum hönnuðum og öðrum sem vinna við frágang prentgripa.  Heftið fæst keypt á Hallveigarstíg 1 og kostar 3.000 kr.

19.11.2007

Staðall fyrir vinnslulitrúm prentmynda

Nýlega sendi ECI (European color initiative) frá sér þá frétt að vinnuhópur sá sem fjallar um stafrænar ljósmyndir í ISO tækninefnd númer 42 fyrir ljósmyndun hefði samþykkt að taka upp eciRGBv2 sem staðlað RGB vinnslulitrúm í ISO 22028.
ECI mun bráðlega senda frá sér upplýsingarit sem mun innihalda allar nauðsynlegar upplýsingar varðandi notkun og eiginleika eciRGBv2 en sækja má ICC prófíl þennan af vefsíðu ECI www.eci.org/eci/en/060_downloads.php
þessi ákvörðun ISO mun væntanlega auðvelda ljósmyndurum að velja rétt vinnslulitrúm fyrir þær myndir sem þeir hyggjast senda til prentunar, en hingað til hefur verið nokkuð á reiki hvert það litrúm ætti að vera og sumir mælt með Adobe RGB 1998, aðrir með eci og sumir jafnvel með einhverjum öðrum litrúmum.

9.11.2007

Að keppa á gæðum en ekki verðum

George ThomasGeorge Thomas, framkvæmdastjóri Oxuni-Print, prentsmiðju Oxford University Press hélt málstofu 9. nóvember. Á málstofunni fjallaði George  um samkeppnisforskot sem myndast þegar iðnfyrirtæki keppa á aukinni þjónustu. M.a sagði hann frá því hvernig Oxuni-Print hefði aukið afkastagetu sína með skýrari framtíðarsýn og markmiðum. Þá greindi hann frá því hvaða forskoti er hægt að ná á markaði þar sem verð og gæði eru ákveðin af viðskiptavinum.  Glærur af fyrirlestri George Thomas má finna hér.

9.11.2007

Hádegisfyrirlestur George Thomas vel sóttur

Prýðileg þátttaka var á hádegisfyrirlestri George Thomas í dag. Um 40 manns sóttu fyrirlestur hans um hvernig rétta liðsheildin er sett saman. Glærurnar má finna hér.

9.11.2007

Að ráða rétta fólkið

TerryPrýðileg þátttaka var á málstofu Terry O´Reilly í morgun. Í fyrirlestri sínum fjallaði Terry um starfsmannastefnu, afkastaaukningu og markmiðssetningu í rekstri iðnfyrirtækja á borð við prentsmiðju Oxford University Press. Hann sagði frá því hvernig Oxuni-Print, prentsmiðja Oxford University Press hefur laðað til sín ungt hæfileikafólk með nútímalegum og markvissum stjórnunarháttum. Lykilatriði í árangri Oxuni-Print er gagnsæi fyrirtækisins og upplýsingagjöf til starfsmanna um afkomu og árangur. Fyrirlestur Terry má finna hér.

8.11.2007

Hádegisfyrirlestur George Thomas í sal 337 Stjórnendaskóla HR

George Thomas heldur hádegisfyrirlestur 9. nóvember í sal 337 (ekki bláa salnum eins og áður var auglýst) í Stjórnendaskóla Háskólans í Reykjavík kl. 12.00 - 13.00.

 

7.11.2007

Ghent staðlar um prentun myndefnis.

Ghent staðlaráðið (Ghent PDF Workgroup) hefur gefið út prófíla og staðla um prentun myndefnis í dagblöðum og bókapappír. Í stöðlunum eru gefin ráð um ,,embedding" litrúmsins, dot-gain ofl. sem varðar stillingar í Photoshop fyrir myndefni sem fer á prent. Hægt er að nálgast staðlana hér.

Einnig er hægt að hlaða niður stöðlunum af vefsíðunni www.gwg.org og smella á ,,white paper" og þar undir digital photography.

Þess má geta að Ólafur Brynjólfsson heldur námskeið í prófílum fyrir myndefni á prent snemma á nýárinu. Skráning hefst eftir helgi hér á vefnum.

1.11.2007

Terence O´Reilly fjallar um starfsmannastjórnun í prentiðnaði

Terence O´Reilly, starfsmannastjóri Oxford University Press fjallar um starfsmannastefnu Oxford U.P. á málstofu 9. nóvember nk. kl. 9.30-11.00. Hann kemur í stað George Thomas sem gerði sér lítið fyrir og bauð samstarfsmanni sínum með til Íslands.
Skráning á málstofur með þeim Terence og George eru undir linknum námskeið hér til hægri.



Slóðin mín:

Forsíða

Heim

Forsíða IÐUNNARIDAN.IS

Stjórnborð

Minnka letur Upphaflegt letur Stækka letur Senda þessa síðu Prenta þessa síðu Veftré Hamur fyrir sjónskerta

Mynd