29.10.2007
Styrkir til vinnustaðakennslu
23.10.2007
Forstjóri Oxford University press til Íslands
George Thomas, forstjóri Oxford University Press heldur fyrirlestra og málstofur 9. nóvember nk. George hefur náð undraverðum árangri í rekstri prentsmiðju Oxford bókaútgáfunnar. Hann hefur ma. aukið hagnað um 58% og sölu um 33% á sama tíma og starfsmannafjöldi hefur eingöngu vaxið um 4%. Þá hefur hann náð miklum árangri í ráðningum starfsmanna og lækkað starfsmannaveltu niður í 4%.
11.10.2007
Ingi Erlingsson fjallaði um teiknimyndir í auglýsingum
Ingi Erlingsson, ungur hönnuður sem starfar í London hélt hádegisfyrirlestur í Bláa salnum í húsnæði Háskólans í Reykjavík (gamla Morgunblaðshúsinu) í dag. Ingi fjallaði um hugmyndavinnuna á bak við auglýsingagerðina, sköpun persóna og ,,storyboard" við auglýsingu sem unnin var fyrir Umferðarstofu í sumar. Ingi starfar hjá auglýsingastofunni ilovedust í London og er yfirmaður hreyfimyndadeildar þeirra. Ingi starfaði áður í New York og lauk námi í grafískri hönnun frá College for the Creative Arts í London fyrir rúmu ári. Fyrirlesturinn var vel sóttur. Næsti hádegisfyrirlestur er áætlaður 9. nóvember með George Thomas, forstjóra Oxford University Press.
10.10.2007
Námskeið um efnainnihald og mælingar í vatnsverki prentunar
Hermann Þórðarson kenndi nokkrum nemendum um efnainnihald og mælingar á vatnsverki prentunar á námskeiði prenttæknisviðs í dag. Einnig fjallaði Hermann um samsetningu fount lausnar og alkohólfría prentun. Námskeiðið var samvinnuverkefni Nýsköpunarmiðstöðvar Íslands og IÐUNNAR fræðsluseturs.
Markmiðið með námskeiðinu var að freista þess að byggja upp þekkingu á efnafræði vatns fyrir prentun innanlands. Hingað til hefur þessi þekking verið sótt til erlendra fyrirlesara. Námskeiðið tókst með ágætum og verður framhald á vorönn 2008.
9.10.2007
Námskeið hefjast við Háskólann í Reykjavík
Námskeiðið ,,Bestu aðferðir rekstrar" hófst stundvíslega klukkan 14.00 í dag. Tólf þátttakendur eru skráðir til leiks og kennari er Jón Hreinsson, fjármálastjóri Nýsköpunarmiðstöðvar Íslands. Námskeiðið er hið fyrsta af tveimur námskeiðum á haustönn sem aðildarfélögum IÐUNNAR standa til boða við Háskólann í Reykjavík. Á þessu námskeiði verður veitt yfirlit yfir rekstraraðferðir, fjármálastjórnun og framleiðslustjórnun í iðnaði. Seinna námskeiðið hefst 29. október og fjallar um mannauðsstjórnun. Námskeiðin eru sérsniðin fyrir stjórnendur og verðandi stjórnendur í iðnaði og eru hluti af samningi milli IÐUNNAR fræðsluseturs og Háskólans í Reykjavík sem undirritaður var síðastliðið vor.
4.10.2007
Sandee kennir InDesign
Sandee Cohen hóf kennslu á InDesign í dag með fullskipuðu námskeiði. Sandee er líflegur kennari og var ekki annað að sjá en nemendur hennar lifðu sig inn í námsefnið.
Sandee kennir InDesign fyrir lengra komna 4. og 5. október og Illustrator fyrir lengra komna 8. og 9. október.
Leit
Mynd











