Beint á leiðarkerfi vefsins

19.12.2007

,,Hélt þú værir að gabba mig"

,,Ég hélt þú værir að gabba mig" sagði Anna Helgadóttir í Gutenberg þegar sviðsstjóri prenttæknisviðs færði henni gjafakort að upphæð 7.500 kr. Anna tók þátt í þarfagreiningu prenttæknisviðs og lagði nafn og símanúmer í pottinn.  Hún var svo ljónheppin að vinna gjafakort í Kringluna.

Fimm aðrir heppnir þátttakendur unnu gjafakort og fá tölvupóst í dag. Hinir heppnu geta nálgast gjafakortin á Hallveigarstíg 1 á skrifstofutíma.

29.11.2007

Kennsluhefti í litstýringum komið út

Litstýring Út er komið kennsluheftið Litstýring eftir Jón A. Sandholt. Heftið er 58 blaðsíður og fjallar um litafræði, litrúm, ICC litstýringar, prófíla og vinnsluflæði í ICC, RGB og CMYK. Heftið er ætlað fagmönnum í forvinnslu, prenturum, ljósmyndurum, prentsmiðum, grafískum hönnuðum og öðrum sem vinna við frágang prentgripa.  Heftið fæst keypt á Hallveigarstíg 1 og kostar 3.000 kr.

19.11.2007

Staðall fyrir vinnslulitrúm prentmynda

Nýlega sendi ECI (European color initiative) frá sér þá frétt að vinnuhópur sá sem fjallar um stafrænar ljósmyndir í ISO tækninefnd númer 42 fyrir ljósmyndun hefði samþykkt að taka upp eciRGBv2 sem staðlað RGB vinnslulitrúm í ISO 22028.
ECI mun bráðlega senda frá sér upplýsingarit sem mun innihalda allar nauðsynlegar upplýsingar varðandi notkun og eiginleika eciRGBv2 en sækja má ICC prófíl þennan af vefsíðu ECI www.eci.org/eci/en/060_downloads.php
þessi ákvörðun ISO mun væntanlega auðvelda ljósmyndurum að velja rétt vinnslulitrúm fyrir þær myndir sem þeir hyggjast senda til prentunar, en hingað til hefur verið nokkuð á reiki hvert það litrúm ætti að vera og sumir mælt með Adobe RGB 1998, aðrir með eci og sumir jafnvel með einhverjum öðrum litrúmum.

9.11.2007

Að keppa á gæðum en ekki verðum

George ThomasGeorge Thomas, framkvæmdastjóri Oxuni-Print, prentsmiðju Oxford University Press hélt málstofu 9. nóvember. Á málstofunni fjallaði George  um samkeppnisforskot sem myndast þegar iðnfyrirtæki keppa á aukinni þjónustu. M.a sagði hann frá því hvernig Oxuni-Print hefði aukið afkastagetu sína með skýrari framtíðarsýn og markmiðum. Þá greindi hann frá því hvaða forskoti er hægt að ná á markaði þar sem verð og gæði eru ákveðin af viðskiptavinum.  Glærur af fyrirlestri George Thomas má finna hér.

9.11.2007

Hádegisfyrirlestur George Thomas vel sóttur

Prýðileg þátttaka var á hádegisfyrirlestri George Thomas í dag. Um 40 manns sóttu fyrirlestur hans um hvernig rétta liðsheildin er sett saman. Glærurnar má finna hér.

9.11.2007

Að ráða rétta fólkið

TerryPrýðileg þátttaka var á málstofu Terry O´Reilly í morgun. Í fyrirlestri sínum fjallaði Terry um starfsmannastefnu, afkastaaukningu og markmiðssetningu í rekstri iðnfyrirtækja á borð við prentsmiðju Oxford University Press. Hann sagði frá því hvernig Oxuni-Print, prentsmiðja Oxford University Press hefur laðað til sín ungt hæfileikafólk með nútímalegum og markvissum stjórnunarháttum. Lykilatriði í árangri Oxuni-Print er gagnsæi fyrirtækisins og upplýsingagjöf til starfsmanna um afkomu og árangur. Fyrirlestur Terry má finna hér.

8.11.2007

Hádegisfyrirlestur George Thomas í sal 337 Stjórnendaskóla HR

George Thomas heldur hádegisfyrirlestur 9. nóvember í sal 337 (ekki bláa salnum eins og áður var auglýst) í Stjórnendaskóla Háskólans í Reykjavík kl. 12.00 - 13.00.

 

7.11.2007

Ghent staðlar um prentun myndefnis.

Ghent staðlaráðið (Ghent PDF Workgroup) hefur gefið út prófíla og staðla um prentun myndefnis í dagblöðum og bókapappír. Í stöðlunum eru gefin ráð um ,,embedding" litrúmsins, dot-gain ofl. sem varðar stillingar í Photoshop fyrir myndefni sem fer á prent. Hægt er að nálgast staðlana hér.

Einnig er hægt að hlaða niður stöðlunum af vefsíðunni www.gwg.org og smella á ,,white paper" og þar undir digital photography.

Þess má geta að Ólafur Brynjólfsson heldur námskeið í prófílum fyrir myndefni á prent snemma á nýárinu. Skráning hefst eftir helgi hér á vefnum.

1.11.2007

Terence O´Reilly fjallar um starfsmannastjórnun í prentiðnaði

Terence O´Reilly, starfsmannastjóri Oxford University Press fjallar um starfsmannastefnu Oxford U.P. á málstofu 9. nóvember nk. kl. 9.30-11.00. Hann kemur í stað George Thomas sem gerði sér lítið fyrir og bauð samstarfsmanni sínum með til Íslands.
Skráning á málstofur með þeim Terence og George eru undir linknum námskeið hér til hægri.

29.10.2007

Styrkir til vinnustaðakennslu

Samtök Iðnaðarins auglýsa eftir umsóknum um styrki til iðnfyrirtækja sem annast vinnustaðakennslu. Fyrirtæki sem taka nema í ljósmyndun og fjölmiðlatækni eru sérstaklega hvött til að sækja um. Styrkurinn nemur að jafnaði þriðjungi eða að hámarki helmingi af kostnaði við vinnustaðakennslu nema. Nánari upplýsingar og umsóknareyðublað er að finna hér. Umsóknarfrestur er til 20. nóvember 2007.

23.10.2007

Forstjóri Oxford University press til Íslands

George Thomas, forstjóri Oxford University Press heldur fyrirlestra og málstofur 9. nóvember nk. George hefur náð undraverðum árangri í rekstri prentsmiðju Oxford bókaútgáfunnar. Hann hefur ma. aukið hagnað um 58% og sölu um 33% á sama tíma og starfsmannafjöldi hefur eingöngu vaxið um 4%. Þá hefur hann náð miklum árangri í ráðningum starfsmanna og lækkað starfsmannaveltu niður í 4%.

11.10.2007

Ingi Erlingsson fjallaði um teiknimyndir í auglýsingum

 

Ingi Erlingsson, ungur hönnuður sem starfar í London hélt hádegisfyrirlestur í Bláa salnum í húsnæði Háskólans í Reykjavík (gamla Morgunblaðshúsinu) í dag. Ingi fjallaði um hugmyndavinnuna á bak við auglýsingagerðina, sköpun persóna og ,,storyboard" við auglýsingu sem unnin var fyrir Umferðarstofu í sumar. Ingi starfar hjá auglýsingastofunni ilovedust í London og er yfirmaður hreyfimyndadeildar þeirra. Ingi starfaði áður í New York og lauk námi í grafískri hönnun frá College for the Creative Arts í London fyrir rúmu ári. Fyrirlesturinn var vel sóttur. Næsti hádegisfyrirlestur er áætlaður  9. nóvember með George Thomas, forstjóra Oxford University Press.

10.10.2007

Námskeið um efnainnihald og mælingar í vatnsverki prentunar

Hermann kennir

Hermann Þórðarson kenndi nokkrum nemendum um efnainnihald og mælingar á vatnsverki prentunar á námskeiði prenttæknisviðs í dag. Einnig fjallaði Hermann um samsetningu fount lausnar og alkohólfría prentun. Námskeiðið var samvinnuverkefni Nýsköpunarmiðstöðvar Íslands og IÐUNNAR fræðsluseturs.
Markmiðið með námskeiðinu var að freista þess að byggja upp þekkingu á efnafræði vatns fyrir prentun innanlands. Hingað til hefur þessi þekking verið sótt til erlendra fyrirlesara.  Námskeiðið tókst með ágætum og verður framhald á vorönn 2008.

9.10.2007

Námskeið hefjast við Háskólann í Reykjavík

Nemendur á námskeiði HR

Námskeiðið ,,Bestu aðferðir rekstrar" hófst stundvíslega klukkan 14.00 í dag. Tólf þátttakendur eru skráðir til leiks og kennari er Jón Hreinsson, fjármálastjóri Nýsköpunarmiðstöðvar Íslands. Námskeiðið er hið fyrsta af tveimur námskeiðum á haustönn sem aðildarfélögum IÐUNNAR standa til boða við Háskólann í Reykjavík. Á þessu námskeiði verður veitt yfirlit yfir rekstraraðferðir, fjármálastjórnun og framleiðslustjórnun í iðnaði. Seinna námskeiðið hefst 29. október og fjallar um mannauðsstjórnun. Námskeiðin eru sérsniðin fyrir stjórnendur og verðandi stjórnendur í iðnaði og eru hluti af samningi milli IÐUNNAR fræðsluseturs og Háskólans í Reykjavík sem undirritaður var síðastliðið vor.    

4.10.2007

Sandee kennir InDesign

Sandee Cohen hóf kennslu á InDesign í dag með fullskipuðu námskeiði. Sandee er líflegur kennari og var ekki annað að sjá en nemendur hennar lifðu sig inn í námsefnið.

Sandee kennir InDesign fyrir lengra komna 4. og 5. október og Illustrator fyrir lengra komna 8. og 9. október.

Sandee kennir 

   
   

28.9.2007

Stjórnarfundur EGIN á Íslandi

EGIN (European Graphic/Media Industry Network) halda stjórnarfund sinn á Íslandi í dag 28. september. Til landsins eru komnir stjórnarmenn frá Danmörku, Noregi og Hollandi.

27.9.2007

Blái salurinn vaknar á ný!

Fyrirlestur um notkun teiknimynda í auglýsingum! 

Ingi Erlingsson, ungur hönnuður í London, heldur fyrirlestur um notkun teiknimynda í auglýsingum.

17.9.2007

Viltu fá póst frá okkur um skemmtileg námskeið?

Nú getur þú skráð þig á póstlistann okkar með því að smella á linkinn hérna til hægri.  

17.9.2007

Íslenskir prentarar læra hjá Heidelberg

Þeir Guðmundur B. Theodórsson, Sigurður Einarsson, Stefán Magnússon og Ingjaldur Valdimarsson sóttu 5 daga námskeið hjá Heidelberg Print Media Academi nú í byrjun september. Á námskeiðinu var farið rækilega í Image Control búnaðinn.  Image Control er litrófsmælir sem mælir punktastækkun og gefur farfagreiningu á augabragði.  Búnaðurinn sparar allt að tvo til þrjá daga sem áður tók að mæla og fá niðurstöðu. Image control fylgir flestum prentvélum frá Heidelberg en margir prentarar eru ófúsir að nota það þar sem aðrar en tímafrekari aðferðir eru til.  Þeir félagar töldu að með IC væri hægt að stytta innstillingu niður í einn þriðja með því að nota búnaðinn rétt. Með IC væri auk þess hægt að kalíbrera hverja vél fyrir ákveðna lesningu. Það stytti tíma og sparaði efni. Þá voru þeir allir sammála um að svona námskeið efldi áhuga þeirra og gerði starfið skemmtilegra.

Þeir félagarnir létu afar vel af aðbúnaðinum og kennaranum. Þeir fengu ítarlega skoðun um prentsal Heidelberg og sáu dularfulla prentvél undir gráum dúk. Sú verður afhjúpuð á DRUPA 2008.

Þeir Sigurður, Ingjaldur, Stefán og Guðmundur voru styrktir til fararinnar af Prenttæknisviði, OPM og Félagi Bókagerðarmanna. 

17.9.2007

Yfirlit yfir bestu aðferðir rekstrar

IÐAN fræðslusetur heldur námskeið í samvinnu við Háskólann í Reykjavík um bestu aðferðir rekstrar lítilla og meðalstórra fyrirtækja. Námskeiðið er ætlað stjórnendum, millistjórnendum og tilvonandi stjórnendum. 

13.9.2007

Vel mætt á Ben Willmore

Góð þátttaka var á Photoshop námskeiði með Ben Willmore sem hófst í morgun.  Uppselt er á námskeiðið en 40 sæti voru í boði.

30.8.2007

Sundmeistari afhendir nýjan námsvísi

Afhending námsvísis
Jakob Jóhann Sveinsson margfaldur Íslandsmeistari í sundi afhenti Finnbirni Hermannssyni stjórnarformanni IÐUNNAR fyrsta eintakið af nýjum námsvísi í gær.  Jakob Jóhann prýðir forsíðu námsvísisins að þessu sinni. Námskeiðsframboð IÐUNNAR er glæsilegt sem fyrr og geta aðiladarfélagar valið úr rúmlega 100 námskeiðum á haustönn.  Námsvísirinn berst félagsmönnum í pósti á næstu dögum. Skráningar á námskeið eru á heimasíðunni hér til vinstri og í síma 5906400.

15.8.2007

Námskeiðstyrkur - viltu fara til Finnlands?

Prenttæknisvið IÐUNNAR býður 2 styrki til nemenda til að sækja námskeið í stafrænni prentun. Námskeiðið verður haldið í Finnlandi, í Jyvaskyla Vocational Institute 17. september - 5. október.

13.8.2007

Adobe CS4 í sjónmáli!

Adobe er nú þegar hafið vinnu við næstu útgáfu Creative Suite, CS4.  Notendahópur sem verður skipaður almennum notendum mun funda með stjórnendum Adobe í Chicago 15 október nk. Adobe hefur ekki gefið út hvenær næsta útgáfa mun líta dagsins ljós.

8.8.2007

Nýsveinar í bókiðngreinum

nysveinar bokidn07

10 nýsveinar tóku við sveinsbréfi við hátíðlega athöfn í húsi Félags bókagerðarmanna við Hverfisgötu þann 15. júní s.l.

Efsta röð frá vinstri: Guðmundur Ragnar Guðmundsson frkvstj. Prentmets, Hjörtur Guðnason formaður sveinsprófsnefndar í grafískri miðlun, Stefán Jón Sigurðsson bókbandsmeistari, Hrefna Ársælsdóttir, Aldís Sigríður Sigurðardóttir, Katrín Jónsdóttir, Sigrún Ásgeirsdóttir, Jónína Ósk Lárusdóttir, Ingibjörg Dís Gylfadóttir og Þóra Kristín Sveinsdóttir. Á myndina vantar Sigurð Kjartansson og Pálma Sigurðsson nýsveina í prentun.  

14.6.2007

Ben Willmore aftur til Íslands!

Ben Willmore, photoshop-gúrúinn geðþekki sem vann hug og hjörtu Íslendinga í fyrra, heldur nýtt námskeið á Íslandi 13. og 14. september. Ben er heimsþekktur photoshopleiðbeinandi og á sér dygga fylgismenn hvar sem hann kemur.  

7.6.2007

Danir undirbúa kennslu með farsímum

 Í Danmörku er rannsakað hvort kenna megi með þriðju kynslóðar farsímum. Tilraunir hafa verið gerðar með að senda stutta kennslumola til stétta sem nota ekki tölvur í sínum störfum.

7.6.2007

Handbók um prentmiðlun væntanleg

Bókaútgáfan Iðnú hyggst gefa út Handbók um prentmiðlun næsta haust. Bókin er vegleg í alla staði, á fjórða hundrað blaðsíður með fjölda ljósmynda og skýringarmynda.

25.5.2007

Útskrift nýsveina í bókiðngreinum 15. júní

Útskrift nýsveina úr bókiðngreinum verður 15. júní n.k. kl. 17.30 í húsi FBM að Hverfisgötu 21. Allir nýsveinar, fjölskyldur þeirra og meistarar eru velkomnir.

ATH. Breyttan tíma, 15. júní kl. 17.30

Ellefu nemar gengust undir sveinspróf að þessu sinni. 2 í bókbandi, 2 í prentun og 7 í prentsmíð. Sveinspróf í ljósmyndun verða haldin í september 2007. Þá verður einnig framkvæmt mat á starfsreynslu til styttingar á vinnustaðanámi nemenda í fjölmiðlatækni, bókasafnstæki og veftækni ef umsóknir um slíkt berast.

11.4.2007

IÐAN og HR undirrita samning um stjórnendanám

Svafa Grönfelt rektor HR og Sveinn Hannesson stjórnarformaður IÐUNNAR undirrituðu viðamikinn samning um stjórnendanám í gær.

15.3.2007

Bættu um betur - húsasmíði

Verkefnið Bættu um betur - Húsasmíðibyggiðn

13.3.2007

Nýr vefur í loftið

Glöggir lesendur taka eftir því að þeir eru að lesa nýjan vef prenttæknisviðs.



Slóðin mín:

Forsíða

Heim

Forsíða IÐUNNARIDAN.IS

Stjórnborð

Minnka letur Upphaflegt letur Stækka letur Senda þessa síðu Prenta þessa síðu Veftré Hamur fyrir sjónskerta

Mynd